Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1956, Side 54

Andvari - 01.01.1956, Side 54
50 Guðmundur Gíslason Hagalín andvari árum sínum, leigði ásamt öðrum manni stofuna hjá frænku sinni. Þá bjuggu menn þrengra en nú. Á Skólavörðustíg 11 bjuggu þau Benedikt og Guðrún alla sína hjúskapartíð — eða rúm fimmtíu ár. Þeim varð sjö bama auðið. Synir þeirra eru Sveinn framkvæmdastjóri, Pétur banka- stjóri Landsbankans og Bjarni alþingismaður, en dætur Krist- jana, sem átti Lárus Blöndal bókavörð og lézt í fyrra frá manni og börnum, Ragnhildur, dó tvítug, Guðrún, gift Jóhannesi Zoéga verkfræðingi, og Ólöf, gift Páli Björnssyni stýrimanni. Frú Guðrún Pétursdóttir er gáfuð kona og mjög vel mennt- uð, hagvirk, mikilvirk og framtakssöm, gædd óvenjulega styrkri og þó viðkvæmri skapgerð. Hún sá af einstakri elju, röggsemi og alúð um heimilið og barnahópinn og var gædd slíkum áhuga á þeim málum, sem voru hugsjónamál bónda hennar, að hún fremur hvatti hann en latti — og það á þeim árum, sem ástæður voru erfiðar, börnin ung og eftirtekjan rýr af störfunum. Frú Guðrún saumaði sjálf fánann mikla, sem Benedikt Sveinsson bar á þjóðfundinum á Þingvelli 1907, og vert er að geta þess, að í hinu sama húsi var fyrsti bláhvíti fáninn saumaður tíu árum áður. Það gerði eða lét gera Þorhjörg Sveinsdóttir eftir forsögn Einars Benediktssonar frænda síns, og var fáninn í fyrsta sinn dreginn að hún af Kvenfélagi íslands á þjóðhátíðardaginn — 2. ágúst — 1897. Frú Guðrún Pétursdóttir taldi ekki eftir sér að taka á móti þeim mörgu gestum, sem komu til þess að ræða stjórnmál eða íslenzk fræði við bónda hcnnar, stundum af þörf, en oft sér til fróðleiks og skemmtunar. Og slíkt hefur verið þrek frú Guðrúnar, að auk alls þess, sem að hefur kallað heima fyrir, liefur hún haft forystu um ýmis þau mál, sem varða heimilishagi og aðstöðu og réttindi kvenna, og enn sinnir hún slíkum málum komin ofarlega á áttunda tuginn. O O Benedikt Sveinsson var mjög skemmtilegur heima fyrir, ró- legur og laus við smámunasemi. Flann ræddi við börn sín og hafði lag á að vekja sncmma hjá þeim ást á þjóðlegum fræðum, las fyrir þau ljóð og l’ornar sögur, skýrði fyrir þeim það, sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.