Andvari - 01.01.1956, Qupperneq 62
58
Lúðvík Kristjánsson
ANDVAItl
félögum þess. Kom á daginn síðar, að Þorlákur hafði ekki farið
erindisleysu til Islands hvað það snerti.
Segir nú ekki af ferð Þorláks fyrr en hann kom til ísafjarðar,
en ædunin var, að hann verzlaði þar og á Borðeyri. Á Isafirði
var skip hans í 12 daga. Heimsótti hann mörg góðbú við Djúp
þann tírna. I bréfi, sem hann ritar Jóni Sigurðssyni frá ísafirði,
víkur hann efnislega á þessa leið að einum góðvina Jóns við Djúp:
Kveðju á ég að bera þér frá Kristjáni Ebenezerssyni í Reykjarfirði.
Það er bezta bóndaheimili, sem ég hef komið á. Þar eru 42
menn í heimili. Hann á 500 fjár og 4 skip lætur hann ganga
til fiskjar. Kristján hatar Dani, segist aldrei hafa átt við önnur
eins hundsspott. Orsökin er sú, að hann fór frarn á styrk til að
koma upp saltverki í Reykjarfjarðarnesi, þar sem gamla saltverkið
var áður, en það var ekki hægt, nema mót vissum panti í góðri
jörð. Þetta brennur nú í karli.
Séra Þórarinn Böðvarsson í Vatnsfirði verzlaði við Þorlák
fyrir 2400 ríkisdali og Kristján í Reykjarfirði fyrir 2000 ríkisdali.
Hann rnátti því vel una viðtökunum á ísafirði. Megnið af mat-
vörunni geyrndi Þorlákur Norðlendingum, en til Borðeyrar var
hann kominn áður en kauptíð hófst. Þegar þangað kom, var þar
fyrir Glad lausakaupmaður og skúta frá Clausen, síðar kom Sig'
urður Vigfússon frá Hólanesi, þá Símonsen, annað skip frá Clau-
sen drekkhlaðið matvörum og loks eitt skip frá Gudnran. Alls
voru því samtímis á Borðeyrarhöfn sjö spekulantsskip. „Mér
leizt ekki á blikuna“, segir Þorlákur og bætir við, að allir hafi
kaupmenn lagzt á eitt að spilla lyrir ensku verzluninni. Ullin
var kornin upp í 44 skildiríga pundið, og Glad var í laumi farinn
að bjóða 46. En verzlun byrjaði ekki, bændur biðu eftir enn hærra
boði. Loks kvað Þorlákur upp úr með 48 skildinga og var þá
ekki að sökum að spyrja, að hann seldi allan sinn varning og
fékk svo mikla ull sem skip hans gat tekið. Séra Ólafur á Stað
segir, að verzlun Þorláks hafi gengið vel að því leyti, að hann
hafi selt út og muni hann sá einasti, sem það hafi gert, því að-
sókn spekulanta hafi verið mikil.