Andvari - 01.01.1956, Page 102
98
Magnús Már Lárusson
ANDVARI
fyrirrennara síns, Gottskálks Kænekssonar, af kunnri norskri að-
alsætt.
í bréfi Ólafs erkibiskups Þrándarsonar, binn 28. júní 1459,
kemur það lram, að erkibiskup telji, að rétt kjörinn biskup eigi
að hafa samþykkt sína og kanóka í Niðarósi, sem liafa fríheit og
jus eligendi episcopos, kosningarrétt, til dómkirkna á íslandi. Þeir
bafa tekið kjör Hólapresta sem ábendingu, tilnefningu, og hagað
electio, kjöri, eftir því, enda er síra Ólafur þá nefndur electus.
Eigi að síður er þetta skref í áttina til hins forna og jafnframt
til þess, sem nú er.
Eftirmaður Ólafs biskups, Gottskálk Nikulásson, bróðursonur
hans, er að líkindum valinn með sama hætti, þar sem hann í
bréfi frá hinum 11. júlí 1496 að Hólum nefnir sig: síra Gott-
skálk Nikulásson postulatus til Hóladómkirkju.
Elzta heimild úr Skálholtsstikti um þetta efni er bréf frá
Alþingi árið 1519 til Kristjáns annars konungs um það, að Ög-
rnundur ábóti Pálsson í Viðey hafi verið kosinn til biskups í
Skálholti, og er konungur beðinn að samþykkja þá kosningu.
Bréfið greinir frá því, að prelátar og prestar Skálholtskirkju hafi
út sent Ögmund ábóta. Hið sama, að Ögmundur bafi verið út
sendur, kernur og fram í bréfi hans til konungs binn 13. ágúst
1520 í Harvík: Vér erum út sendir af dómkirkjunni í Skálholti
til vors föðurs í Guði erkibiskups í Þrándheimi og hans verðug-
legra kapitulabræðra þar. Orðalag þetta gefur til kynna, að svo
sem í Hólastikti hafa prestar í Skálholtsstikti bent á sinn mann
með tilnefningu, en kapituli í Niðarósi haldið að forminu til jus
eligendi, nema einhver skjöl hafi glatazt, en líkt verið farið að
og nú skal greina.
Því enn færist nær réttu horfi, er kapitulabræður fela prest-
um Hólastiktis jus eligendi að Gottskálki Nikulássyni látnum,
svo sem kjörbréf Jóns Arasonar ber með sér binn 18. ágúst 1522
á Hólum, er 62 prestar kjósa hann sinn formann. Hið sama
kemur og fram í vitnisburði 24 presta þá um haustið og stað-
festingarbréfi Friðriks konungs fyrsta hinn 25. ágúst 1523 i