Menntamál - 01.12.1954, Page 30
64
MENNTAMÁL
uppeldisstofnanir. Lögboðnar námsgreinar eru ekki skemmtileg við-
fangsefni, sem þjóna menningarlegum tilgangi. Staglið ræður. Svo-
kallaðir æðri skólar gefa fordæmið og virðast steinrunnir í gömlum
formum. Sjálfsagt er til þess ætlazt, að við barnakennarar flytjum
svona smá siðaprédikanir við og við yfir börnum og tölum þá mjög
fagurt, en ég hef ekki mjög sterka trú á siðbætandi áhrifum þess. Má
hver lá það, sem vill.
76: Námsskráin er þröng, og skólastofurnar eru einnig þröngar.
Fjölmennið neyðir til allstrangra hegðunarreglna, sem ganga jafnt
yfir alla. Allt miðar þetta að Jrvi, að kennarinn tekur frekar tillit til
hópsins en einstaklingsins.
77: Fyrst og fremst er sá fræðsluforði langt of mikill, sem börn-
um er ætlað að svara til fullnaðarprófs, ekki sízt í farskólum. Náms-
bækurnar orðnar nú milli 20—30. Af Jressu getur orsakazt bókleiði, auk
þess sem lítill tími vinnst til þess að sinna Jjeim atriðum, er orka
á hjartað og hugsunarháttinn til aukins manndóms, enda þótt liver
sæmilegur kennari reyni að flétta það innan um fræðsluna.
83: Margir skólar virðast miða starfsemi sína eingöngu við ein-
kunnir námsgreinanna. Nemendur, sem koma úr skólunum með
glæsilegar einkunnir, eru þó oft á margan liátt illa búnir undir lífs-
störf sín. Ástæðan er fyrst og fremst sú, að þeir kunna ekki að
hugsa, hafa ef til vill aldrei haft tíma til þess.
84: Barnaskólarnir voru of mikið sniðnir eftir gömlu embættis-
mannaskólunum . .. Minna fræðslustagl, meiri skólamenningu með
hollum skólasiðum, félagsstarfi, skólahátíðum.
85: Of mikið af ófrjóu fræðslustagli, sem miðað er við próf og
einkunnir....
87: (a: að manna börnin með fræðslu).
Núverandi kapphlaup um háar einkunnir til Jress að koma börn-
unum í „æðri skóla" torveldar Jrað mjög, einkum þar sem heimilin
virðast meta kennsluna mest eftir einkunnunum.
48: Það má ekki gera skólana að bóknámsverksmiðjum. Það er
]>egar gengið lengra en hóf er að...
52: Minna verði kennt af fróðleiksmolum, sem engum koma að
gagni, en meira af því, sem að gagni kemur i daglegu lífi, og miklu
meira sé lesið af fagurfræðilegum bókmenntum með börnum og
unglingum, og fyrir alla muni að hafa engin próf í þeim efnum.
89: Stytta skal hið mikla bóklega nám, en auka hið verklega mikið.
41: ... mér finnst, að bóklegt vit sé nú heimtað svo mikið af börn-
um, að J)að sé jafnvel til skaða. Það })ýðir ekki að ætla sér að gera
hálærða menn úr öllum börnum, frekar en sveitabóndi reyndi að gera