Menntamál - 01.12.1954, Page 87
MENNTAMÁL
121
um allt Bretland. Ein af megin ástæðunum var talin sú,
að mæður vinna svo mikið úti, mörg hin seinni ár, og hafa
ekki aðstöðu til að sinna börnum sínum. Hefur því skól-
inn orðið að taka að sér hlutverk heimilisins að nokkru, í
þessu efni. Mun hinn daglegi skólatími að einhverju leyti
miðaður við það.
Allar námsbækur og skólatæki (skrifbækur, pennar, blý-
antar, teiknivörur, handavinnuefni og þess háttar), sem
nemendur þurfa daglega að nota, fá þeir ókeypis. Sums
staðar fá þeir einnig leikfimifatnað og skó, meira að segja
knattspyrnuskó. Þótti mér allt of langt gengið í þessu
gjafafyrirkomulagi, og hafði allvíða orð á. Kom þá í ljós,
að margir voru mér sammála.
Engar kennslubækur eru fyrirskipaðar af stjórn fræðslu-
mála. Fjöldi kennslubókaútgefenda er afar mikill, og kepp-
ast allir við að gera sínar kennslubækur sem bezt úr garði,
til þess að þær gangi út. Samkeppni er því hörð á þessu
sviði, enda bækur allar mjög fjölbreyttar og vel til þeirra
vandað. Á það einnig við um öll áhöld og tæki, sem notuð
eru í þágu skólanna. Munu Bretar standa í því efni í
fremstu röð. — Á skólastjórum hvílir sú ábyrgð og vandi
að velja bækur og tæki til skóla sinna. Þeim til hagræðis
eru hins vegar mikil kennslubóka- og tækjasöfn, sem jafn-
an hafa úrval þess bezta, sem til er af því tagi á hverjum
tíma, einnig árlegar skólabóka- og tækjasýningar útgef-
enda. Hef ég á öðrum stað lítillega skýrt frá skólatækja-
safninu í London og hinni árlegu bóka- og tækjasýningu
útgefenda þar, svo að ég ræði það mál ekki frekar hér.1) —
Ýmsir skólastjórar tjáðu mér, að þeir teldu þetta mikinn
vanda, og eyddu í það miklum tíma. Kennslumálastjórn
greiðir til skólastjóra ákveðna upphæð árlega með hverju
barni, og hækkar hún nokkuð með aldri nemenda. Auk þess
eru sérstakar greiðslur til verklegs náms. Fyrir þetta kaupa
1) Heimili og skóli 1952.