Menntamál - 01.12.1954, Síða 88
122
MENNTAMÁL
þeir svo allt, sem kaupa þarf. Greiðslur þessar eru víðast
hvar ekkert skornar við nögl, enda bóka- og tækjakostur
brezkra skóla yfirleitt mjög góður.
Lágmarkstala nemenda í bekk í stórum hluta Englands
er 44, en víða kom ég, þar sem nemendur voru 47 og yfir
50 í bekk. I Skotlandi er þessi tala nokkru lægri. Mun þarna
vera komið að einu mesta vandamáli brezka kennarans, og
þarf ekki mörg orð um það að hafa. Allir sjá, hvaða mögu-
leikar eru á því að hafa náið, persónulegt samband við
hvern nemanda, þegar þannig er í pottinn búið. Þótt all-
ir kennarar óski breytinga á þessu, verður engu um þokað,
vegna hins óhemjulega nemendafjölda. En vegna hinna
fast mótuðu, brezku uppeldishátta, sem ég mun víkja síð-
ar að, fullyrði ég, að sambúð og samstarf kennara og nem-
enda tekst víða óaðfinnanlega, þóttmörgum kunni að þykja
ótrúlegt. Ég dáist að því, þegar ég lít um öxl, hve öll
regla var víða frábær, þrátt fyrir þrengsli og hinn mikla
fjölda.
Tala nemenda í bekkjum, þar sem börnin eru eitthvað
vangæf, er að sjálfsögðu miklu lægri. Kennsla slíkra nem-
enda er þaulskipulögð, ekki sízt í Skotlandi, og margs kon-
ar bækur og tæki gefin út við hæfi þeirra. Er þar margt til
fyrirmyndar.
Heimavinna nemenda er engin í barnaskólum og ekki
heldur í verknámsdeild framhaldsskóla. Verður því eðli-
lega að miða skólastörfin töluvert við það. Fyrirkomulag
þetta hefur verið alllengi í Bretlandi, og mun einkum fram
komið vegna hins langa skólatíma, bæði daglega og í heild.
Vafalaust vinna duglegir og áhugasamir nem. eitthvað að
skólanámi heima, eins og gengur. En skólinn gefur ekki
fyrirmæli um það og ætlast ekki til þess. 1 bóknámsdeild
er þess hins vegar að sjálfsögðu krafizt.
Líkamlegar refsingar eru leyfðar samkv. lögum, og í
samræmi við það fá skólastjórar, þegar þeir taka við emb-
ætti, litla bambusstöng, sem þeim er heimilt að nota, ef