Menntamál - 01.12.1954, Page 136
170
MENNTAMÁL
Félagið hefur nú gefið út tímaritið Heimili og skóla í 12 ár.
A fundinum gengu 6 kennarar f félagið.
Varðandi veitingu námsstjóraembætta samþykkti fundurinn eftir-
farandi: „Aðalfundur Kennarafélags Eyjafjarðar lítur svo á, að það
sé höfuðnauðsyn að námsstjórarnir séu búsettir á eigin eftirlitssvæði,
því skorar fundurinn á fræðslumálastjórnina að gera það að skil-
yrði fyrir veitingu þessa embættis framvegis.11
Þá var einnig samjjykkt eftirfarandi tillaga:
„Með því að Drög að námsskrá, sem út voru gefin árið 1948 hafa
nú hlotið nokkra reynslu og eru auk þess ófáanleg, óskar aðalfundur
Kennarafélags Eyjafjarðar eindregið eftir því, að hraðað verði út-
gáfu nýrrar námsskrár með þeim breytingum, sem æskilegar þykja
og hlotið liafa samþykki kennarasamtakanna."
FRÁ SÖNGKENNARAFÉLAGI ÍSLANDS.
Nokkrir kennarar í Reykjavík höfðu forgöngu um stofn-
un Söngkennarafélags Islands árið 1952. Markmið félags-
ins er að efla söngmennt í íslenzkum skólum með því að
beita sér fyrir bættum skilyrðum til söngkennslu og auk-
inni menntun söngkennara. 1 samvinnu við fræðslumála-
stjóra hefur félagið efnt til fjögurra námskeiða fyrir
söngkennara, var hið síðasta s. 1. haust. Hefur félagið
jafnan kappkostað að fá hina færustu menn til kennsl-
unnar. Fyrir atbeina félagsins hefur fræðslumálastjórn-
in safnað upplýsingum um framkvæmd söngkennslunnar í
landinu, og voru helztu niðurstöður þeirra skýrslna birtar
á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í Reykjavík 27.
sept. s. 1. Allmargir söngkennarar gengu í félagið á aðal-
fundinum, og dr. Heinz Edelstein var gerður að heiðurs-
félaga. Alls eru félagsmenn nú um 40. Formaður er frú
Guðrún Pálsdóttir, en aðrir í stjórn félagsins eru Helga
Magnúsdóttir, Helgi Þorláksson, Ingólfur Guðbrandsson
og Páll Kr. Pálsson.