Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 25
23
eða öll, er hann að sér tók. Haraldur náði góðum
aldri, er látinn fyrir tiltölulega fáum árum.
(4.) Jóhann Briem, bóndi á Grund við íslend-
ingafljót.
(5.) Dr. Valdimar Briem, skáld og vígslubiskup.
á Stóra-Núpi. Látinn 3. maí síðastl.
(6.) Kristján Briem, dó ungfullorðinn á Akur-
eyri.
(7.) Gunnlaugur Briem, efnismaður mesti;
druknaði rúmlega tvítugur í Norðurá í Skagafirði.
(8.) Ólafur Briem. Hefir lengi átt heima á Sauð-
árkrók, en er nú nýfluttur til Reykjavíkur.
(9.) Rannveig, kona Sigtryggs Jónassonar, fyrr-
um þingmanns og ritstjóra Lögbergs. Stórgáfuð
merkiskona, látin árið 1916.
(10.) Jakob Briem, nú til heimilis að Betel,
Gimli. Vel kunnur mörgum af fréttabréfum hans,
er við og við hafa birst í íslenzku blöðunum.
Þau Grundarhjón, Ólafur Briem og Dómhildur
kona hans, dóu með skömmu millibili, þá er Jóhann
var tólf ára. Bauðst þá séra Jóhann Briem, prestur
í Hruna, bróðir ólafs á Grund, til að taka nafna
sinn, en hann vildi ekki þiggja það boð. Varð þá
Valdimar fyrir því að fara að Hruna. Fékk þar hið
bezta uppeldi, sem kunnugt er. Var settur til menta
af séra Jólianni. Eignaðist Ólöfu dóttur séra Jó-
hanns fyrir konu, ágætiskonu hina mestu, og varð
á sínum tíma einn hinna ágætustu andlegrar stétt-
armanna þjóðar vorrar, og eitt af liöfuðskáldum
hennar, sérstaklega sem sálmaskáld, og svo virtur
og elskaður af þjóð vorri, að fáir eða engir sam-
tímismenn liafa komist þar jafnlangt og því síður
framar.
Maður getur gert sér ýmsar hugmyndir um það
hvað úr Jóhanni Briem hefði orðið ef hann hefði
þegið boð séra Jóhanns frænda síns og farið að
Hruna.