Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 117
115
ur þeir sem hröktust með straum árinnar. Á þeim árum
voru miklar skipaferðir eftir árr-ni frá Winnipeg til Crook-
stone í Bandaríkjunum. Það gat því verið hættulegt að
verða á vegi þeirra fyrir smáferju, eins og þá sem hér um
ræðir, því gufubátarnir sendu frá sér stór boðaföll, sem velt-
ust þvert yfir ána til beggja landa. Og einu sinni var þessi
Langnesingaferja nærri farin af þeim orsökum. Eftir það
' gekk ferðin slysalaust en hægt, eins og árstraumurinn til St
Andrews, sem var næsti lendingarstaður við landnámið. Þeg-
ar þangað kom var fleytunni lagt inn í mynnið á þverá þeirri,
sem fellur í Rauðána þar skamt frá og nefnd er Park River.
Þaðan var hún dregin á uxum heim í nýlenduna. Eins og
ráða má af líkum, lá ærið starf fyrir höndum, bæði I þvi
að byggja skýli yfir sig og plægja landið. Þetta fyrsta sumar
er þeirra mest getið við plægingarvinnuna, ólafs og Stefáns
Uxum var beitt fyrir plógana og plægður sinn bletturinn hjá
hverjum þessara frumbýlinga, í nokkurnveginn réttum hlut-
föllum. Aðrir karlmennirnir tóku að sér byggingastörfin.
Kofar þeir báru þess ljósan vott að þeir voru gerðir af van-
efnum. Veggirnir að flestum þeirra voru hlaðnir úr torfi,
eða grafið inn í gilbarma. Borðviður var enginn annar en
sá sem var í kofanum og prammanum. Þess er sérstak-
lega getið að pramminn var rifinn og borðviðurinn hafður
í þak á hús Aðalmundar, sem var fyrsta húsið sem bygt
var í nýlendunni. Þegar hallaði af sumri, munu flestir þess-
ir menn hafa verið búnir að koma upp hreysum fyrir sig
* og skepnur sínar. Meðan á þessum byggingum stóð, höfðu
konurnar húsnæði hjá írskum hjórium, sem bjuggu niður
við Parkána skamt frá þessu landnámi, og hét húsbóndinn
John Salvon. Þegar kornskurðartíminn nálgaðist, lögðu
nokkrir af þessum mönnum upp fótgangan|di suður til
, áðurnefnds búgarðs, Grandy Farm, til að vinna þar viö
uppskeruna. Vanalegt kaupgjald á þeim árum við þá vinnu
var $1.50 á dag, en við plægingarvinnu var borgað mán-
aðarkaup, 12 dalir um mánuðinn. Búgarður þessi var 0
sectionir, eða 7,460 ekrur að stærð. Þar unnu um upp-
skerutímann 300 karlmenn. Um þenna búgarð hefði mátt
segja eins og sagt var um Rómaborg á fyrsta ríkisstjórnar-