Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 77
suður til Hallson, þar sem hann var áðuf. Börn
þeirra eru: 1. Guðrún, 2. Snæbjörn, 3. Sveinbjörn,
4. Ólöf Ingibjörg. Eftir nokkura ára sambúð þar
syðra skildu þau samvistir. Stefanía flutti afbur
norður í Framnesbygð með tvö yngri börnin. Réðist
hún þá sem bústýra til Jakobs Björnssonar, og hefir
verið þar síðan. En Kristján á hér kærar endur-
minningar í hugurn bygðarbúa, því hann var ágæt-
ur söngmaður, er liafði mikinn og sterkan bassa-
róm. Er sæti hans hér óskipað síðan, á því sviði.
Landnemi, lot 28.
Jón Jónsson, yngri. — Hann settist aldrei á þetta
land, en vann réttinn á því hjá föður sínum, Jóni
eldra á Framnesi.
Landnemi, lot 29.
Guðmundur Magnússon. — Foreldrar hans voru
Magnús og Margrét dóttir Jóns bónda á Skarði á
Vatnsnesi, Jónassonar sarna staöar. En foreldrar
Magnúsar föður Guðmundar voru Magnús bóndi í
Kothvammi, Magnússon, og Ingigerður dóttir Guð-
mundar í Enniskoti í Víðidal. Var liann talinn t
betra lagi hagyrðingur, jafnvel ákvæðaskáld. Var
það ráðið af vísu sem hann gerði í harðindum er
jarðbönn voru yfir alt og heyskortur. Þá kvað hann:
Sjáðu, Drottinn, aumur á
öllum þeim sem biðja.
Láttu skepnur fóður fá
fyrir viku miðja.
Var þá kominn góður bati næsta dag. Fleira var
sagt af þeirri skáldgáfu hans, er hann hafi beitt á
líkan hátt, en aldrei öðrurn til meins.
Guðmundur Magnússon ólst upp með foreldrum
sínum, sem bjuggu á ýmsum stöðum á Vatnsnesi-
inu og þaðan flutti hann til Vesturheims. Dvaldi
hann nokkur ár í Brandon. Þaðan flutti hann í hina