Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 88
slaka til á klónni. Dóttir þeirra er Sesselja ekkja
Gunnars Oddssonar sem getið var hér að framan.
Landnemi, lot 39.
Árni Þórðarson. — Foreldrar hans voru Þórður
Helgason og Ingibjörg Árnadóttir, er bjuggu á Rafn-
kellsstöðum í Garði í Gullbringusýslu. Föður sinn
misti hann er hann var 12 ára. Kom þá fljótt í ljós
að hann var bráðgjör og athugull. Fór hann því
bráðlega að sjá um búið með móður sinni, ásamt
yngri bróður sínum og var hann hjá henni til full-
orðins ára. Þá kvæntist hann Valgerði dóttur Þórð-
ar bónda á Ánabrekku, Guðmundssonar. Móðir
hennar var Bergþóra Kristín Bergþórsdóttir frá
Langárfossi í Borgarhreppi. Árið 1898 fluttu þau
hjón til Vesturheims. Dvöldu þar fyrst eitt ár í
Mikley, síðan þrjú ár að Hnausum. Stundaði Árni
þá aðallega smíðavinnu, því hann var þjóðhaga
smiður. Árið 1902 settust þau hjón á landið er þau
tóku þá rétt á. Þar bjuggu þau 8 ár. Brugðu
þá búi og fluttu til Árborgar. Þar bygði Árni sér
hús sunnan megin fljótsins gegnt bænum. Hugðist
hann að stunda srníðar eingöngu, en heilsan var
þrotin og hann dó ári síðar. Eftir það flutti Valgerð-
ur til Winnipeg, með dóttur sína, Sigrúnu Berg-
þóru, sem var eina barn þeirra hjóna og þá var á
barnsaldri. Þar hefir hún verið til heimilis síðan.
Nú er Sigrún gift manni af enskum ættum, er heit-
ir William J. Brooking. Heimili þeirra er að Tre-
herne, Man. '
Valgerður er hæg og stilt í dagfari og lætur lítið
yfir sér, þó leynir það sér ekki er maður kynnist
henni nokkuð náið, að hún er ein með allra greind-
ustu konum. Bróðir hennar er Bergþór Þórðarson,
bæjarráðsmaður á Gimli, sem margir kannast við.