Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 99
athafiíámaður í bygðinni, 2. Lilja Jóhanna, 3. Jónína
Guðrún gift Ágúst Guðmundsyni Elíassonar í Árnes-
bygð, 4. Sigurjón Marino, 5. Snæbjörn. Stúlku
mistu þau unga er hét Una Friðný. Guðmundur lézt
2. júlí 1929. Hann var sérstaklega vinsæll meður og
vel látinn, greiðvikinn, hjálpfús og veglyndur, hann
átti líka ágæta konu, er ekki spilti þeim góðu kost,-
um. I-Iann var hinn mesti dugnaðarmaður og sér-
lega laginn á veiðiskap, átti þá margur úlfurinn lífið
undir hans skothæfni; með því að eyðileggja þann
vágest var hann liinn mesti bjargvættur bygðarinn-
ar fyrir sauðfjárræktina og gekk ötullega fram að
þeirri landhreinsun. Búið stundaöi hann vel, þó kom
þar oft eins mikið til konunnar, er hann var á
sínum veiðitúrum, hann vissi líka að öllu var óhætt
heima fyrir, það fór ekki í óhirðu og henni mátti
treysta. Stóö búið með hinum mesta blóma er liann
féll frá, og ekkert útlit fyrir að það dragist niður
hjá Herdísi og börnum þeirra. Þegar Gunnar Odd-
son féll frá keypti Guömundur landið af ekkjunni.
Landnemi, S.W. l/á 17.
Salbjörg SigurSsson. — Maður hennar hét Ólafur
Sigi^rðsson, dáinn fyrir mörgum árum. Salbjörg er
móðursystir Herdísar konu Guðmundar Jónssonar.
Hún tók rétt á landinu, en seldi það síðan, Jónasi
Hermundi frænda sínum. Barnlaus var hún en ól
upp fósturson er heitir Guðjón Björnsson. Dvelur
hún lijá honum í Mikley og hefir lagt til með sér
töluverð efni. Nú er hún 86 ára.
Landnemi, N.W. !4 18.
Kristinn Frímann Kristinnsson. — Faðir hans var
Kristinn Jónsson, búsettur á Akureyri, var verk-
stjóri að vegalagningu á Vaðlaheiði og víðar. En
móðir Kristins Frímanns hét Rósa Sigurðardóttir.
Kristinn var ekki skilgetinn. En móðir hans giftist