Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 97
95
Þorsteinssonar landnema, (lot42.) og getið er liér
framar. Börn þeirra: 1. Stefanía Guðrún, gift Vik-
tor Ágúst Borgfjörð, syni Guðmundar Borgfjörðs.
2. Þorsteinn Valdimar, 3. Magnús, 4. Benjamín
Pranklin, 5. Hermannía Ágústa, 6. Guðrún Elisabet,
7.Kristjánína Helga, 8. Guðbjörg Lilja.
Þeim lijónum var á þessu ári 1930 haldið veglegt
silfurbrúðkaup er þau höfðu verið 25 ár í hjóna-
bandi. Og var það að verðleikum, því þeim hefir
farist snildarlega vel.
Jón Stefánsson. — Um ætt hans er ókunnugt.
Hann var giftur Elínu dóttur Gunnlaugs bónda á
Kirkhóli í Skagafirði Magnússonar. En móðir henn-
ar var Ragnheiður dóttir Sölva bónda á Stóru-Seilu.
Þau Jón og Elín fluttu frá Skinnþúfu í Skagafirði til
Vesturheims árið 1900, settust þá á landið og tóku
rétt á því. Jón dó litlu eftir það. Þau eignuðust
fjóra sonu og eina dóttur. Synir þeirra eru: 1.
Kristján, hann ræður fyrir búinu með móður sinni,
er athafnamaður hinn mesti og listfengur smiður,
2. Ellimann, 3. Jóhannes, 4. Gunnlaugur. En Jónína
er dóttir. Fjölskyldan gengur undir nafninu Johnson.
Landið var nefnt að Fiskilæk, síðan landið þornaði
er sú veiöi horfin sem nafnið er dregið af. En hagur
heimilisins stendur með hinum mesta blóma, og
standa systkinin að því sem einnn maður með móð-
ur sinni.
Bygðin er liggur í sama Range bak við fljótslöndin
sunnan og vestanvert.
Landnemi, J4 2.
Sigurður M. Brandsson hann er búsettur á loti 46
og þar er hans getið, tók einn kvart í sec. 2.
Landnemi, N.E. l/j, 10 og N.E. 14 12.
Ellimann Johnson, sonur Jóns Stefánssonar og
Elínar Gunnlaugsdóttur á Fiskilæk, lot 52. Hann