Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 124
122
ust þaðan hingað til lands og dvöldu það sem eftir var æf-
innar hjá börnum sinum, lengst af hjá Aðalmundi syni sín-
um; dóu bæði skömmu eftir síðustu aldamót.
Aðalmundur ólst upp hjá foreldrum sínum til ársins 1878.
Fluttist það ár til þessa lands og var einn af landsnáms
mönnunum við Little Salt 1880. Giftist árið 1880 Asdísi
Guðmundsdóttur frá Sköruvík á Langanesi; hún lézt 1891.
Aðalmundur flutti úr þeirri bygð til Garðar 1897 og hefir
búið þar síðan. Hann hefir jafnan fengið orð fyrir það að
vera góður búhöldur, árvakur starfsmaður, hirtinn og um-
gengnisgóður, og farið vel með allar skepnur; traustur og
ábyggilegur til orða og verka. (Sjá þátt hans í Sögu Is-
lendinga í Norður Dakota, bls. 325).
Jón Sigurðsson var fæddur á Skálum á Langanesi í N.-
Þingeyjarsýslu árið 1850, sonur Sigurðar bónda Jónssonar
sem um mörg ár bjó í Kumblavík í sömu sveit," og þar óx
Jón upp til fullorðinsára. Giftist Margréti Guðmundsdóttur
frá Sköruvík. Þau fluttu til Ameríku árið 1878, en til Little
Salt árið 1880 og bjuggu þar nokkur ár. Fluttu þaðan til
Grafton, N. D., og voru þar einnig nokkur ár. Fluttu það-
an til Grand Forks, N. D., og bjuggu þar lengi. Þar dó Jón
fyrir nokkrum árum. Jón var stiltur og gætinn, fáorður
og fáskiftinn og mikið góðmenni. Kona hans, sem enn
lifir, var fríð í sjón og vel greind, eins og margt af hennar
ættfólki var og er. Þau eignuðust börn, sum þeirra eru
dáin. Tvær dætur þeirra lifa, og mun gamla konan vera
hjá annari þeirra, sem er gift Gunnari bónda Tryggvasyni i
Argylebygð í Manitoba-
Sigurður Jónsson bóndi í Kumblavík og Margrét kona
hans fluttust þaðan til þessa lands árið 1879. Voru ein af
þeim, sem námu lönd við Little Salt; fluttu þangað vorið
1880. Þau hjón lifðu ekki lengi, eftir að þau komu þangað.
Þau voru jarðsett í grafreit bygðarinnar.
Stel'án Sigurðsson frá Kumblavík flutti til þessa lands
sama ár og foreldrar hans, nefnd hér næst á undan. Flutt-