Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 79
77
sem áður hafði heitið hjá þeim á Poldinni. Þau voru
hin mestu rausnarlijón. Jón var maður glaðsinna
og skemtilegur, hjálpfús og greiðvikinn. Hann lézt
1911, 66 ára. Þórdís var þá látin fáum árum fyr.
Hún var búsýslukona mikil, dugleg og fyrirhyggju-
söm. Börn þeirra eru: Jón (l.n. lot 28) og Vilborg.
En fósturdóttir Sigríður Jóhannsdóttir, er þau tóku
vögguharn af fátækum hjónum.
Þau systkyni tóku við búinu af foreldrum sínum
og héldu uppi sama myndarbrag sem áður hafði
þar verið. Þau voru mjög vinsæl og mikils metin af
bygðarbúum. Árið 1922 brugðu þau búi og fluttu
til Winnipeg. (Siðar til Winnipegosis). Veglegt
kveðjusamsæti héldu Framnesbúar þeim að skilnaði.
Þegar skrifað verður yfirlit af sögu Bifrastar-
sveitar, er óhjákvæmilegt að Jóns yngra á Framnesi
verði getiö, þar eð hann hafði trúnaðarstörf á hendi
bæði fyrir svetina og félagsheildina, sem honum
fórst snildarlega úr hendi. Pósthús var þar sett hjá
honum 1904, sem nefnt er Framnespósthús, sem
Framnesbygðin er við kend. Þar hafði hann póst-
afgreiðsluna á hendi, þar til hann flutti þaðan.
Landnemi, lot 33.
Þorsteinn Hallgrímsson. — Hann er fæddur í Vík
í Flateyjardal í Suður-Þingeyjarsýslu árið 1844. Þar
bjuggu foreldrar lians Hallgrímur Hallgrímsson
Þorsteinssonar sterka, og Sesselja Þorsteinsdóttir.
Þá hann var 10 ára fluttist hann að Tungu í Fnjóska-
dal, til Benidikts Bjarnasonar og Bjargar Jónsdótt-
ur er þar bjuggu og hann kallaði fósturforeldra sína.
Þar dvaldi hann 19 ár. Þaðan flutti hann til Vestur-
heims með fyrsta útflutningsstraumnum 1873.
Settist hann þá að í Rosseau í Ontario og tók þar
rétt á landi. Þá gifti hann sig Ingunni dóttur Jóna-
tans bónda í Miðhópi, Jósafatssonar, Tómassonar á
Ásgeirsá í Víðidal. Tómas átti Ljótunni Jónsdótt-