Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 127
125
ington-ey í Michiganvatni (lika í Wisconsin), Lancaster
county í Nebraska, Muskoka í Ontario, og Halifax county í
Nýja Skotlandi. I þessum siðastnefnda stað eiga eflaust
flestir heima. En í engum bæ í Vesturheimi er eins margt
af Islendingum saman komið eins og í Winnipeg, sem er
stjórnarsetur Manitobafylkis i Canada; þar hefst íslenzkt
fólk við svo hundruðum skiftir, og eykst tala þess árlega. I
bænum Milwaukee I Wisconsin, þar sem hinir fyrstu Islend-
ingar settust að, eru enn nokkrir Islendingar. Víða annars-
staðar, bæði í bæjum og á landsbygðinni, eru Islendingar á
strjálingi. Einstaka hafa jafnvel komist allar götur vestur
að Kyrrahafi.
Af hinum mikla fólksgrúa, sem ár eftir ár þyrpist til
Vesturheims úr hinum ýmsu löndum Norðurálfu, nemur nú
varla neinn staðar í því skyni að nema land fyr en vestur í
miðju meginlandi Norður-Ameriku — langt nokkuð fyrir
vestan Mississippifljót, því að allt land þar fyrir austan, sem
ekki er þegar numið eða bygt, er svo hrjóstugt, eða með
einhverjum öðrum annmörkum svo miklum, að þar þykir ekki
byggilegt. Það var þó einmitt í þessum parti landsins, að
Islendingar fyrst báru niður. Þeir voru fyrst fjölmennir í
Ontario, en sáu brátt, að þar myndi sér ekki veranda. Létu
þeir því berast með straumnum vestur á bpginn, og þannig
myndaðist hin íslenzka nýlenda við vesturströnd Winnipeg-
vatns, Nýja Island. Og nú er ekki nema lítill tíningur af
Islendingum eftir á hinum upphaflegu stöðvum þeirra í
Ontario- Sumir af þeim, sem þar voru, leituðu reyndar
aftur austur að Atlantshafi til Nýja Skotlands, og við hóp
þeirra þar hefir síðan nokkuð bæzt beinlínis heiman af Is-
landi, en geta má nærri hvort land það, er Islendingum stóð
þar til boða, hefir verið annað en úrgangur, þar sem Nýja
Skotland liggur austast á austurströnd Norður-Ameríku, og
bygðir hófust þar svo snemma sem á öndverðri 17. öld. Af
Islendingum þeim, sem þar eru niður komnir, hafa reyndar
ekki farið miklar sögur, en svo mikið mun óhætt að fullyrða,
að hagur þeirra er fremur örðugur, og engin likindi til, að
nýlenda þeirra nái verulegum framgangi. Sumir, sem flutt
hafa þangað beint frá Islandi, hafa vitanlega gjört það af