Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 65
63
þangað fluttu þau hjón sig 1914 en voru þar ekki
lengi. Fluttu þau aftur til Nýja-íslands, keyptu þá
land Karvels Halldórssonar og liafa búið þar síðan.
(Lot 8). Þau giftu sig 5. Nóv. 1905. Börn þeirra eru:
1. Tryggvi; 2. Hólmfríður; 3. Pétur Stefán; 4 Guðrún
Jóhanna; 5. Andrés Edvarð; 6. Kristjana Rannveig.
Siðan þau hjón settust að í Litla-Hvannni (svo
nefndi Karvei bólstað sinn), hefir þeim liðið vel,
bysrt þar upp góð híbvli og kaupa nú gott engja-
iand, S. W. J4 8-23-2É.
Landnemi, S.E. 28.
Einar Metúsalemsson. -— Hann vann réttinn hjá
foreldrum sínum, Metúsalem Jónssyni og ásu Ein-
arsdóttur, sem hér hefir verið getið, landnema Ár-
dalsbygðar. Einar lézt úr hastarlegri lungnabólgu
seinni part vetrar 1904, þá rúml. tvítugur, efnis-
piltur. Landið eignaðist fóstbróðir hans Gísli Sigur-
bjartur. Hann er sonnr Guðm. Guðmundssonar og
Önnu konu hans er bjuggu í Pembina, N. D. Gísli
er giftur Björgu dóttur Halla á Vindheimum. Þau
hjón búa nú á landinu.
Landnemi, N.E. /4 28.
Jón Metúsalemsson. — Hann er sonoir Metúsal-
ems Jónssonar og Ásu, en bróðir Einars, sem hér
er getið að framan. Hann vann réttinn á landinu
hjá foreldrum sínum, var stöðugt 'hjá þeim, þar til
þau hættu búskap 1925. Hann er einhleypur mað-
ur, mesti gæðadrengur og vel kyntur. Hann er nú
hjá Gísla fósturbróður sínum, og starfrækir land
sitt.
Landnemi N.W. V4 28.
Halldór Abrahamsson. — Hann var bróðir Björns
Abrahamssonar, sem hér var getið (Lot 7). Til
Vesturlieims flutti hann árið 1882. Hann settist
fyrst að á Sandhæðum, sem kallaðar voru í Norður