Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 31
29
tekið mikinn og verulegan þátt í kvenfélagsstarfi í
bygðinni. Ungmennafræðsla til fermingar undir-
búnings hefir í mörg ár verið í hennar höndum og
mun vera enn. Bræðrasöfnuður hefir víst æfinlega
átt stóran hóp af úrvalskonum, og ef til vill aldrei
stærri lióp en einmitt nú. Munu allir er til þekkja
telja Guðrúnu Briem þar í fremstu röð.
Börn þeirra Briems hjóna eru sex að tölu, þrjár
stúlkur og þrír piltar. Eru þau hér talin eftir aldri,
ef eg man rétt:
(1.) Veighildur Mabel. — Maður hennar af ensk-
um ættum, Percy Wood að nafni, skólakennari.
Þau hjón munu nú eiga heima í borginni Saskatoon,
(2.) Valdheiður Lára. — Er hún einnig gift
enskum manni, er Albert Edward Ford heitir. Vinn-
ur hann við eitt stórblaðið í borginni Toronto, þar
sem þau hjón eiga nú heima.
(3.) Marino Páll. — Er ógiftur heima með for-
eldrum sínum. Sér nú um búið á Grund.
(4.) Valgerður Helen. — Maður hennar er ÓIi
Cogliill. Þau hjón eru búsett í Riverton.
(5.) Sigtryggur Hafsteinn. — Kona lians er Ingi-
björg Guðjónsdóttir, Ingimundarsonar, úr Vest-
mannaeyjum. Eru þau einnig búsett í Riverton.
(6.) Eggert Ólafur, ógiftur. — Befir hann unnið
við dagblöð í borgunum Toronto og Regina undan-
farin ár.
—Öll eru þau börn þeirra Briems hjóna ágætlega
gefin og myndarleg.—
Jóhann Briem er nú um það að verða hálf-ní-
ræður, f. 7. desember 1845. Máttu þeir heita jafn-
aldra, Dr. Jón sál. Bjarnason og liann, er var fædd-
ur 15. nóv., það sama ár. Voru þeir aldavinir. Jó-
hann er enn vel ern. Hugsunin lifandi og skýr svo
að furðu gegnir. Getur hann haldið uppi fjörugu
og skemtilegu samtali, nærri því eins og til forna.
Guðrún kona hans er einum átján árum yngri en