Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 108
106
er Karitas, dóttir Mattíasar Brandssonar og Þór-
unnar Þórðardóttur. (Lot 46.) Börn þeirra eru: 1.
Sigríður, 2. Stefán, 3. Vilhelm. Prá íslandi fluttu
þau hjón til Vesturheims árið 1914. Skall þá hurð
svo nærri hælum, að litlu sem engu mátti muna að
þau gætu komist er stríðið skall yfir. Landið tóku
þau litlu síðar, en bjuggu þar fá ár. Fluttu síðan til
Humboldt, Sask. Björn er þar smjörgerðarmaður,
ferst honum það verk svo vel úr hendi, að vakið
hefir aðdáun á markaðinum.
Landnemi, N.E. !4 14.
Sveinn Sveinsson. — Hann er Þingeyingur al-
bróðir Þorsteins Sveinssonar, sem getið hefir verið
(Lot, 9-10.) Kona Sveins er Ovídá Jóelsdóttir Jónas-
sonar frá Hvammi í Höfðahverfi. En móðir hennar
var Dórothea Loftsdóttir frá Sauðanesi á Upsa-
strönd. Þau eiga eina dóttur er heitir Ida Dórothea.
Landið nam Sveinn 1916. Hann er gagnfræðingur
af Möðruvallaskóla.
Landnemi, S.E. !4 25.
Jón J. Hornfjörð. — Foreldrar hans voru Jón
söðlasmiður Jónsson Eyjólfssonar og Sesselja Sig-
urðardóttir frá Reiðará í Lónssveit. Bjuggu þau á
Setbergi í Nesjum í Hornafirði. Til Vesturheims
flutti hann 1890. Ári síðar giftist hann Guðleifi
Árnadóttur frá Görðium í Mjóafirði, Jónssonar.
fluttu þau þá til ísafoldarbygðar í Nýja-íslandi og
bjuggu þar 10 ár. Árið 1901 tóku þau þetta land.
Þar bjuggu þau full 20 ár. Mátti heita að hagur
þeirra blómgaðist með ári hverju, allan þann tíma,
sérstaklega hin síðari árin. En þá fór að vanta meira
land til heyskapar er öll hin betri lönd vonu tekin.
Og það mun helzt hafa hvatt þau til burtferðar.
Árið 1922 keyptu þau land í grend við Leslie, Sask.,
og fluttu þangað. Veglegt skilnaðarsamsæti var