Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 43
41
var hjá henni fram á fulltíða aldur. Þótti hún bæði
fríð og gervileg. Giftist hún Magnúsi sumarið
1886. Þorgrímur heitir son þeirra, en Guðrún dótt-
ir, önnur Þuríður. — Þau hjón bjuggu á ýmsum
stöðum í Húnaþingi. Til Vesturheims fluttust þau
um aldamótin; settust að í Headingly, við Winni-
peg.
í þann tíma voru lönd sem óðast að byggjast upp
með íslendingafljóti. Guðmundur Nordal settist að
á lot 4. Hann var sonur Sigurðar Nordals póstaf-
greiðslumanns á Geysi. Guðmundur átti Önnu
Björnsdóttur, Jósepssonar læknis, Skaptasonar á
Hnausum í Húnaþingi. Þau hjón voru barnlaus;
kom þeim saman um að hætta við búskapinn. —
Haustið 1903 fluttu þau Magnús og Guðrún í bygð-
ina cg keyptu af Nordal bæði gripi og búshluti,
tóku rétt á landinu og settust þar að og nefndu það
Storð. Það nafn hefir haldist við síðan.
Þorgrímur sonur þeirra býr nú á landinu. Kona
lians er Guðný Magnea. Þau giftu sig 10. nóvem-
ber 1910 og settust á landið það haust. Paðir henn-
ar var Geirfinnur söðlasmiður, er var um eitt skeið
bóndi á Árbakka á Skagaströnd, gegndi síðan verzl-
unarstörfum á Raufarhöfn, var síðast bóndi á Harð-
bak á Sléttu. Hann var son Gunnars prests í Lauf-
ási, Gunnarssonar prests sama staðar, Hallgríms-
sonar prests á Brjámslæk. Móðir Gunnlaugs var
dóttir Gunnlaugs Briern sýslumanns, Guðbrands-
sonar prests á Bjarmslæk. Móðir Gunnlaugs var
Sigríður, dóttir Jóns prests á Gilsbakka, Jónssonar
prests sama staðar, Eyjólfssonar prests á Lundi.
Voru þeir feðgar orðlagðir gáfumenn, hver fram af
öðrum. Til séra Eyjólfs kom Brynjólfur biskup
Þórði dóttursyni sínum til náms; má af því marka,
hvers álits Eyjólfur prestur hafi notið hjá biskupi,
sem ekki hefir verið gripið af handahófi.
Systir Jóhönnu móðu'r Geirfinns var Kristjana