Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 107
105
Landnemi, S.E. (4 24.
Jón Karvelsson. — Foreldrar hans voru Karvel
Halldórsson og Sigrún Runólfsdóttir, sem áður er
getið. (Lot 8.) Kona hans er Ingibjörg, dóttir Sig-
■urðar Guðmundssonar og Ingiveldar Jósefsdóttur
sem hér liefir verið getið.
Börn þeirra Jóns og Ingibjargar eru: l.Ragnar
Karvel, 2. Rósa Jónasína, er tæplega tvítug, nýlega
gift Leifi, frænda sínum, syni Halldórs Karvelssonar.
3. Ingunn, 4. Sigurjón.
Jón er vinnugarpur mikill, hefir þótt góðra
tveggja manna maki við skógarhögg. Hann er mað-
ur fáskiftinn og fámáll, — en orð heppinn, og oft
frábærilega fyndinn í tilsvörum. En Ingibjörg er
glaölynd, viðræðisgóð og skemtileg.
Landnemi, N.E. % 24.
Sigurfinnur Sigurðsson. — Foreldrar lians voru
Sigurðiur Jónsson og Jórunn Vigfúsdóttir, er bjuggu
á Steinsmýri á Maðallandi í V. Skaftafellssýslu. Til
Mjóafjarðar flutti hann er hann var um þrítugt. Þar
kvæntist hann Sesselju, dóttur Árna Jónssonar og
Guöleifar Eiríksdóttir, er bjuggu í Görðum í Mjóa-
firði. Árið 1911 fluttu þau til Vesturheims og tveirn
árum síðar tóku þau rétt á þessu landi og bjuggu á
því 7 ár. Þaðan fluttu þau til Spy Hill, Sask. Þau
eignuðust 7 sonu og 2 dætur. Elzta soninn mistu
þau í sjóinn heima á íslandi. Þeir sem lifa eru: 1.
Björgvin, 2. Árni, 3. Sigurfinnur, 4. Olgeir, 5. Guðjón,
6. Hermann. Dætur: Guðný er dáin og Sesselja er
lifir. Sigurfinnur lézt nokkuru eftir að hann settist
að vesturfrá. >
Landnemi, N.W. '/4 24.
Björn J. Hansson. — Foreldrar hans voru Jóhann-
es Hansson og Guðlaug Björnsdóttir, er bjuggu í
Görðum í Staðarsveit í Snæfellnessýslu. Kona hans