Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 62
60
mans sama staðar, Þorvaldssonar á Stóra-Kroppi.
Móðir Sigríðar en seinni kona Jóns var Guðrún
Böðvarsdóttir frá Skáney.
Móðir Eggerts, en fyrri kona Jóns lögsagnara var
Halla Kristín, dóttir Jóns prests á Gilsbakka (d.
1796) Jónssonar prests s.st. (d. 1771, 77 ára), Jóns-
sonar prests s.st. Eyjólfssonar prests á Lundi. En
móðir Jóns lögsagnara á Leirá var Halldóra, dótt-
ir séra Koibeins Þorsteinssonar í Miðdal. Hann var
eitt liið mesta latínuskáld á sinni tíð. Á skólaárum
sínum sneri hann Passíusálmunum á latínu, er þótti
hið mesta snildarverk, og vakti aðdáun hinna lærð-
ustu mann. Eftir hann er skemtikvæðið: “Kátt er
um jólin, koma þau senn.’’ Séra Kolbeinn var af
ágætu bændafólki í Árnessýslu, er þar og mesti
fjöldi hans afkomenda og víða um Borgarfjörð.—
Þar með nafnkunnir menn hér vestra.
Þau Jón og Guðrún Borgfjörð hafa eignast fjór-
ar aætur og íimm sonu. Dætur þeirra eru: 1. Magn-
úsína Helga, gift Jónasi J. Jónassyni; 2. Sigríður
Marta, gift Otto Kristjánssyni; 3. Dýrfinna, gift.
Georg Pálma Olson; 4. Lára Halldóra, gift Sigur-
birni Ó. Jónassyni. Bræðurnir eru: 1. Páll Valdi-
mar; 2. Eggert Júlíus; 3. Árni Vilfred; 4. Magnús;
5. Guðni Edvarð; allir ókvæntir. Guðrún hefir unn-
ið mikið dagsverk, er þó enn ungleg þótt hún sé nú
62 ára. Hún hefir verið framúrskarandi tápmikil
kona.
Árdalsbygðin er liggur á bak við fljótslöndin
norðan og austanvert við íslendingafljót.
Landnemi, S.EfJ/4 25.
María Jónsdóttir Gíslason. — Maður hennar var
Jónas Gíslason Eiríkssonar. En móðir Jónasar var
Guðrún Þorsteinsdóttir, Pálssonar á Hofsstöðum í
Víðvíkursveit í Skagafirði. Faðir Maríu var Jón