Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 26
Hann heföi alveg sjálfsagt verið settur til menta
eins og Valdimar var. En hvort nokkuð annað hefði
orðið eins með þeim bræðrum, er eftir að vita. Þó
mun það rétt, að gáfur þeirra hafi verið býsna svip-
aðar, gáfnalag sömuleiðis, og skáldskapargáfan báð-
um gefin. Er þá meira en sennilegt, að Jóhann
Briem hefði orðið þjóðkunnari maður en hann er,
og ef til vill frægur fyrir eitthvað í hinu smáa þjóð-
félagi voru.
Þau systkini Jóhanns er yngri voru en hann, við
fráfall foreldranna, voru tekin til fósturs af ýmsum
merkum mönnum á Norðurlandi. Kristján fór til Jó-
hanns kaupmanns Hafstein á Akureyri. Gunn-
laugur fór til séra Jóns Austmanns, á Halldórsstöð-
um í Bárðardal, í Þingeyjarsýslu. Ólafur fór til
séra Ólafs Þorvaldssonar í Viðvík. Rannveig var
tekin í fóstur af Pétri amtmanni Hafstein. En Sig-
ríður, er var elzt af börnunum, fór með Jakob bróð-
ur sinn, sem þá var smábarn, til Kristjáns Kristj-
ánssonar, í Hofstaðaseli, er þá var sýslumaður Skag-
firðinga. Kona Kristjáns var Ragnheiður dóttir Jóns
Thorsteinssonar landlæknis. Fluttust þau hjón síð-
ar að Geitaskarði þá er Kristján fekk Húnavatns-
sýslu. Varð Kristján síðar amtmaður yfir Norður
og Austuramtinu, sem kunnugt er, og flutti þá að
Friðriksgáfu í Eyjafirði. Sigríður mun hafa gifst séra
Davíð, frá þeim sýslumanni og frú hans, áður en þau
fóru frá Hofsstaöaseli að Geitskarði. Höfðu þau
Kristján sýslumaður og frú Ragnheiður kostað séra
Davíð til náms. En Jakob Briem fylgdist með þeim
hjónum vestur að Geitaskarði og svo þaðan aftur
með þeim að Friðriksgáfu, þegar Kristján varð amt-
maður. Var Jakob um það seytján ára gamall er
amtmaður féll frá. —
Dómhildur Þorsteinsdóttir, kona Ólafs Briem á
Grund, en móðir Jóhanns Briem og þeirra systkina,
var tvíburi. Hinn tvíburinn var Sigríður systir henn-