Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 39
37
Til Vesturheims fluttist Þórður með foreldrum
sínum árið 1887, og settust þau að í Winnipeg.
Kona Þórðar er Halldóra dóttir Geirfinns Gunn-
arssonar prests í Laufási, Gunnarssonar prests sama
staðar. Móðir Halldóru var Valgerður, dóttir séra
Jóns Kristjánssonar, er síðar varð prestur á Breiða-
bólsstað í Vesturhópi.
Þau Þórður og Halldóra giftu sig 1897. Fluttu
til Nýja íslands 1901; settust þá að á þessu landi,
er þau nefndu Laufás. Börn þeirra eru: 1. Regína
Jóhanna, gift Vilhjálmi Eiríki Sveinssyni, Eirííks-
sonar; 2. Valgerður Geinþrúð, gift Jóhanni bróður
Vilhjálms; 3. Helga Magnea, gift Frank Schlien
(þýzkum í föðurætt, en móðir hans er íslenzk, heit-
ir Soffía Auðunsdóttir, Jónssonar, er búsett á
Gimli); 4. Halldóra Soffía, gift Filipseyjarmanni,
Borlano Angalo; 5. Ingiríður Ása; 6. Rebekka Flor-
ence. Þær síðastnefndu tvær eru heima hjá foreldr-
um sínum allar eru þær systur fríðar og vei gefnar,
enda er Halldóra móöir þeirra með afbrigðum fríð
kona og myndarleg.
Þórður er búmaður góður og kemst vel af. En
lítt sækir hann messur eða mannfagnað. En hann
fagnar vel gestum, sem að garði hans bera, er þá
málreifur og skemtilegur, því hann er skynsamur
í betra lagi.
Landnemi, lot 3.
Jón G. Gunnarsson. — Faðir hans var Geirfinnur
Gunnarsson, en móðir hans Valgerður, dóttir séra
Jóns Kristjánssonar, síðast á Breiðabólsstað í Vest-
urhópi.
Kona Jóns liét Andrea Guðrún. Faðir hennar var
Pétur Lund kaupmaður á Raufarhöfn; hann var
danskur að ætt, en móðir hennar hét Þorbjörg
Árnadóttir, af góðri þingeyskri bændaætt.
Af íslandi fluttu þau lijón til Vesturheims árið
Almanak 1931, 2.