Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 42
40
-—; landnámi því er Úlfur son Gríms háleyska tó«k
sér forðum — sem liggur upp undir Geitlandsjökl-
um, en sem Helgi hefir fengið viðurnefnið af. —
Kona Jökla-Helga, en móður Ólafs á Bjarnastöð-
um, var Sigríður, dóttir Vigfúsar á Hvítárvöllum,
Jónssonar bónda í Norötungu, er veginn var í
Síöumúla 1570, Grímssonar lögsagnara í Þverár-
þingi sunnan Hvítár.
Móðir Magnúsar, en kona Sigurðar á Háafelli,
var Þuríður dóttir Jóns bónda á Signýjarstöðum,
síðar í Deildartungu, Jónssonar dannebrogsmanns
bónda í Deildartungu, Þorvaldssonar bónda á Stóra-
kroppi. En móðir Þuríðar var Guðríður, dó'ttir
Jóns bónda í Stóra-Ási, Þórólfssonar í Síðumúla.
Frá Þórólfi má rekja ætt í beinan karllegg gegnuni
hina alkunnu Fitjaætt í Borgarfirði upp til Höfða-
Þórðar, er nam Höfðaströnd í Skagafiröi.
Kona Magnúsar Sigurðssonar er Guörún, dóttir
Jóns, er var ltallaður vefari; var hann kenndur ein-
hverjum Jóni, sem ekkert þótti líklegt að verið hefði
faðir hans. En það var talið víst að hann væri af
góðu bergi brotinn í föðurætt. Móðir hans hét Þur-
íöur Eileifsdóttir, náskyld skáldkonunni Helgu Þór-
arinsdóttur á Hjallalandi í Vatnsdal. Þuríður ólst
upp í Hjálmholti í Árnessýslu, hjá Þórði sýslumanni
Sveinbjörnssyni, síðar yfirdómstjóra í Reykjavík
Móðir Guðrúnar, en kona Jóns vefara, var Guðríð-
ur, dóttir Þorgríms hreppstjóra á Hjallalandi, Þor-
leifssonar hreppstjóra sama staðar, Þorleifssonar
bónda á Geirastöðum, síðar á Kornsá, Þorgrímsson-
ar á Ægisíðu, Þorleifssonar ríka á Skaga. En móð
ir Guðríðar og kona Þorgríms á Hjallalandi, var
Þorbjörg, dóttir Gísla prests á Tjörn á Vatnsnesi,
Magnússonar sýslumanns á Geitaskarði, Gíslasonar
biskups á Hólum, Magnússonar.
Guðrún ólst upp að mestu leyti hjá móðursystur
sinni, Guðrúnu Þorgrímsdóttur á Hjallalandi, og