Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 141
139
Jósafat faðir Soffíu, var sonur Tómasar Iærða, sem kallaður
, var, og Ljótunnar Jónsdóttir, systur Jóns sýslumanns á
Melum, við Hrútafjörð. Annar sonur Tómasar, var séra
Jóhann á Hesti, skáldmæltur, sem faðir hans. Tómas orti
mest á latínu, eins og þá var títt meðal lærðra manna, og
er því fátt af kvæðum hans. almenningi kunn. Samt eru
> nokkrar visur eftir hann enn þá upp, e. t. d. þ- er hann orti
til konu sinnar:
Ber af öllum snótum snót,
snótin blessuð veri.
Aldrei verður Ljótun Ijót,
ljótt þó nafnið beri.
Kona Jósafats Tómassonar, og móðir Soffíu konu Bald-
vins Helgasonar var Helga Bjarnadóttir frá Þórormstungu
í Vatnsdal í Húnav.s., systir Jóns Bjarnasonar, stjörnufræð-
ings sem einnig bjó i Þórormstungu eftir föður sinn.
Soffía var fædd 22. sept. 1830 á Stóru-Ásgeirsá, þar sem
foreldrar hennar bjuggu og ættbálkar þeirra föðurfrænda
hennar aftur í landnámstíð, því hún — Soffía í föðurætt,
átti kyn sitt að rekja til Hrefnu Ásgeirsdóttur Æðikolls, og
Kjartans, og hefir Ásgeirs nafnið jafnan fylgt þeirri ætt
Elsti sonur Baldvins og Soffíu heitir og Asgeir.
Soffía giftist Baldvin Helgasyni þegar hún var 18 ára
gömul, og fór með honum norður i Þingeyjarsýslu til fólks
hans- Hvað lengi þau voru þar er þeim er þetta ritar ó-
kunnugt um. En það getur ekki hafa verið lengi Þau
byrjuðu búskap á Litlu-Ásgeirsá, i Víðidal og voru þar
eitthvað. Þaðan fluttu þau að Sporði en siðustu 5 árin,
sem þau voru á Islandi bjuggu þau í Gröf á Vatnsnesi. Árið
1873 fluttust þau alfarin af Islandi og settust að í Ontario,
og stofnsettu þar ásamt nokkrum öðrum Islendingum, fyrstu
* ísl. nýlenduna í Canada. Þó sú nýlenda aldrei yrði marg-
menn, er hún enn við líði og búa þar enn þá nokkrir af-
komendur þeirra sem stofnuðu hana.
Þau hjón Baldvin og Soffía áttu 11 börn. Af þeim lifðu
til fullorðins ára sjö. Þau eru eftir aldursröð sem fylgir:
1- Ásgeir Vídalín; 2. Friðrika Soffía; 3. Jósefína Hólmfríð-
ur; 4. Helga Steinvör; 5. Jósafat Helgi; 6. Baldvin Tryggvi;