Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 134
4
Guöbjörg Hjaltadóttir
(Magnússon).
Hún var fædd 1. dag júlímánaðar 1854 að Gilsstöðum í
Staðarsveit í Strandasýslu. Hún var dóttir merkismannsins
góðkunna Hjulta (d. 1893)
Hjaltasonar bónda á Hólum
í Staðardal, Jónssonar, og
fyrri konu hans Guðbjargar
(d. 1872), dóttur Eyjólfs Is-
akssonar og Sigríðar Jóns-
dóttur á Gilsstöðum. Síðari
kona Hjalta Hjaltasonar var
Margrét Helgadóttir, ættuð
úr Dalasýslu. Og er sonur
þeirra Dr. Magnús Hjaltason,
er um skeið átti heima á
Lundar, Man., og síðar í
Glenboro, Man. Alsystur
Guðbjargar Hjaltadóttur, er
til fullorðins-ára komust
voru þessar: Sigríður (d. í
Vancouver, B. C., 1928), hún
var tvígift, og hét fyrri
maður hennar Jón Guðmundsson, en síðari maður hennar var
ölafur ölafsson, frá Vatnsenda í Kjósarsýslu; og Steinunn,
sem dó á Islandi fyrir nokkrum árum. Tvö systkinin dóu
ung. — En uppeldis-systkini Guðbjargar eru þau Ingi-
mundur ölafsson, sem heima á við The Narrows, Man., og
Anna Jónsdóttir, til heimilis í Los Angeles í California.
Guðbjörg fluttist ásamt föður sínum og stjúpmóður vestur
um haf árið 1888, og giftist hún það sama ár Jóni Atla
Magmissyni, og áttu þau heima í íslenzku bygðinni nálægt