Jörð - 01.08.1931, Side 62
60 BJÖRGUN ÚR DAUÐADÁI [Jörð
Ég nefndi að dauðadá gæti stafað af eitrunum, heng-
ingu (kyrking og köfnun, reyk), drukknun og frosnun;
en auk þess geta eldingar og rafstraumur orsakað það.
Eldingar hafa drepið menn hér á landi ; % af þeim, sem
verða fyrir eldingu, deyja strax; en stundum orsaka þær
dá, sem menn geta raknað úr og lifnað við, ef rétt er með
farið. Ég man ekki dæmi þess, að rafstraumur hafi orðið
mönnum að bana hér á landi, en slíkt er all títt erlendis,
þar sem mikið er af háspennustöðvum og skiftistraum,
og má búast við, að slík slys fari að koma fyrir hér. Það
er ekki ótítt að menn verða úti, einkum á Norðurlandi;
en drukknanir valda flestum slysum hérlendis, og þær
eru svo tíðar, að það getur komið fyrir hvert ykkar sem
er að vera viðstödd slík slys, eða að finna mann, sem lent
hefir í vatni. Þegar slíkt ber við, þá er um að gera að
starfa fljótt og starfa vel; þá getur líf mannsins oltið á
fáum augnablikum.
Séu ekki komin glögg dauðamerki, líkblettir*) eða rotn-
un, þá verður að hugsa sér þann möguleika að maðurinn
lifi, og þá má engum tíma eyða í óþarfa fálm; allt verður
að gerast í einum svip og í réttri röð. Sé maðurinn á
þurru, þar sem sæmilega slétt er undir, þarf ekki að færa
hann úr stað; en ef þess gerist þörf, verður það að gerast
fljótt, en þó ekki mjög óvægilega. Síðan er losað um föt
hans um hálsmál, brjóst og mitti. Ekki má hugsa um að
leysa bindi eða afhneppa hnappa, það sem ekki er því
auðveldara; heldur verður að slíta eða skera, og svo er
byrjað stanslaust á því, sem allt er komið undir, að gera
andardráttarhjálp. Þar er um tvær aðferðir að ræða að-
allega, en ég sleppi hér að tala um nema aðra þeirra, hún
er auðlærðari og miklu hægara fyrir einn mann að fram-
kvæma hana, auk þess sem hún hefir aðra kosti fram yfir
hina, sem hjá æfðum manni verður þó líklega talin heldur
áhrifameiri.
Aðferðin, sem ég ætla að lýsa og sýna ykkur er kennd
*) Stórir bláir blettir, á þeim hlutu líkamans sem niður ve'it, þegar
líkið finnst.