Jörð - 01.08.1931, Side 65
BJÖRGUN ÚR DAUÐADÁI
Jörð]
63
liðinn, og taki hann að stjrðna, eftir að farið er að fást
við hann, mun líka mega telja það ói'ækt dauðamerki.
Með Scháfersaðferð endist sami maður lengi, en svo
er líka auðvelt að skiftast á, án þess að hlé verði á. Sá
sem við tekur krýpur þá við hlið hins og leggur hendurn-
ar yfir hendur hans um leið og hann réttir sig við; sá,
sem fyr starfaði, dregur svo hendurnar undan um leið og
hinn hallar sér áfram; fætinum kemur hann svo yfir um
leið og hann réttir sig upp.
Séu tveir eða fleiri að björgun, þá er sjálfsagt að ann-
ar fari, þegar öndunarhjálp er komin vel af stað, til þess
að ná í hjálp og láta senda eftir lækni. En það er regin
vitleysa að æða strax af stað éftir lækni og að ekkert sé
hugsað um lífgunartilraunir á meðan. Jafnvel þó að svo
standi á, að hjálp sé að fá mjög nærri, má ekki eyða dýr-
mætasta tímanum í það að ná í hana, því hún getur þá
komið of seint. Fyrstu 2—3 mínúturnar eftir að manni
hefir verið bjargað úr vatni, má ef til vill lífga hann ef
rétt er að farið, þó að það reynist ómögulegt, ef ekki er
byrjað fyr en eftir 5 mín. Þessvegna ættu allir að læra
lífgunartilraunir; börn innan við fermingu geta gert
þær, og bjargað mönnum á þann hátt, ef þau aðeins
kunna aðferðina.
Sé aðeins einn maður við lífgunina, þá verður hann
að halda áfram, og má ekki yfirgefa fyr en orðið er eitt
af þrennu: 1. að maðurinn er lifnaður við og orðinn
hress; 2. að hann þykist viss um, að maðurinn sé dáinn,
eða 3. að hann hefir ekki þol til þess að halda lengur á-
fram.
En séu fleiri viðstaddir eða komi að, þá er sjálfsagt að
senda eftir lækni, og eins að senda til næsta bæjar, til
þess að ná í heitt vatn í brúsum eða flöskum, ullarföt,
kaffi og hitandi dropa: vín, hoffmannsdropa, kamfóru-
dropa, verk- og vindeyðandi eða slíkt og annað sem þurfa
þætti. Svo getur verið gott að gefa honum eitthvað heitt
eða hitandi að drekka. Og nú á hann að fá að vera í ró.
Hann má nú sofna, en loftið þarf að vera gott í herberg-