Prestafélagsritið - 01.01.1933, Síða 139
132
Dagbjartur Jónsson:
Prestafélagsritiík.
ugt hefir aukist og eflst, og er nú gefið út vikulega í
120.000 eintökum.
Til þess að vinna samúð og stuðning, lagði Cai'lile i leið-
angur 1884. Heimsótti liann aðalborgirnar í hverju bygð-
arlagi og flutti erindi um takmark Kirkjuhersins, hug-
sjónir lians og starfsaðferðir. A þessu ferðalagi fór Car-
lile fleiri hundruð mílur fótgangandi og barði að dyrum
á mörg hundruð prestssetrum, því að hann starfaði jafn-
an með fullu leyfi yfirmanna kirkjunnar. Og hann sá ár-
angur af erfiði sínu i þvi, að hreyfingin óx og efldist
hröðum skrefum.
Kirkjuherinn hafði byrjað starfsemi sína meðal þeirra,
sem fátækastir voru og aumastir, og það var óhjákvæmi-
legt, að hann mætti mörgum, sem þyrftu líkamlegrar
hjálpar. Menn, sem höfðu verið í fangelsi eða látið yf-
irbugast af atvinnuleysi, blásnauðir beiningamenn — all-
ir þessir urðu á vegi Kirkjuhersins unga. Næturgisting og
nokkrar máltiðir var þeim ekki nægileg hjálp. Þó að þarf-
ir þeirra væru mismunandi, þurftu þeir allir varanlegrar
og viturlegrar hjálpar, því að ef hjálpin yrði ekki veitt
á skynsamlegan liátt, mundu þeir brátt fara að
treysta öðrum, en ekki eigin viðleitni. Til að mæta þörf-
um þessara manna, var hið fyrsta vinnuheimili Kirkju-
hersins stofnað í London árið 1889. Innan fimtán mánaða
böfðu risið upp sex vinnuheimili, þrjú i London, hin í
Bath, Slockport og Derby. Og eftir tíu ár voru komin
vinnubeimili í flestum hinna stærri borga um allt landið.
Hafa þau án efa bætt úr brýnni þörf í ensku þjóðlífi.
íbúar heimilanna borga fyrir fæði og búsnæði með
vinnu sinni. Afgangurinn af launum þeirra er svo lagður
í banka fyrir þá, þegar þeir skilja við heimilin. Kirkju-
lierinn hefir oft haft mörg hundruð pund sterling und-
ir höndum frá mönnum, sem fáum vikum áður höfðu ver-
ið fangar eða heimilislausir fátækhngar.
Nokkrum mánuðum eftir að tekið var að stofna vinnu-
heimilin, var einnig komið upp gistiheimilum í sambandi