Prestafélagsritið - 01.01.1933, Page 152
f>restafélagsriti6.
Hvar á Jesús heima?
145
alvalda og eilífa Guðs. Og þar á Jesús heima, og með lion-
l)m allir þeir, sem hans anda tileinka sér og verða í and-
a)ium bræður hans og synir Guðs.
Annar staður, þar sem Jesús á áreiðanlega heima, er
sainfélag lærisveina hans. Það heimilisfang sitt hefir hann
,ekið skýrt fram: „Hvar sem tveir eða þrír eru saman
komnir í mínu nafni, þar mun ég vera mitt á meðal
þeirra“. Hér er ekki um heimilisfang að villast. Þar sem
^enn eru hver hjá öðrum, umgangast hver annnan og
hreyta hver við annan í Jesú nafni, þ. e. láta stjórnast af
þe)m kærleiksríka bróðuranda, sem bjó i Jesú Kristi, þar
er hann sjálfur með, þessi himneski, heilagi bróðir, leiðtogi
°g lausnari vor mannanna. Þegar oss er innanbrjósts líkt
°g Jesú ávalt var innanbrjósts, þegar hugarfar vort er
hreint og sál vor stígur í Jesú nafni upp í dýrðina til Guðs,
þá er Jesús i förinni með. Því eru engin takmörk sett, þvi
yndislega samfélagi við Drottin Jesú, sem trúuðum sálum
013 veitast á helgum bænastundum. „Þér munuð sjá mína
dýrð“, sagði Jesús við lærisveinana, og jæir sáu hana ber-
1,111 augum. Á þeim sama stað á hann ennþá heima. Ef vér
gerum samfundi vora við Guð heilaga og hjax-tanlega, þá
mun hinn lifandi Jesús ekki dyljast oss. En svo samfund-
lrnir við Guð, eða guðsþjónustur vorar, séu í Jesú nafni,
þá þarf söfnuðurinn, stór eða smár, að koma í sitl Guðs
hús með lifandi sál og heitri þrá eftir Guðs djTð. Þá verð-
Um vér að útiloka alt, sem er hégómlegt, alt, sem er kalt,
°d dauð form og veraldlegt prjál og tildur. Vér verðum
að koma heim í hús vors himneska föður eins og börn hans
pg hvert annars systkini. Áður en vér „göngum i Guðs hús
lnn“, þurfum vér ávalt að fara með fimtu bænina í „Faðir
'>or“ og fvrirgefa vorum skuldunautum, svo sem vér ósk-
11 ni þess, að ixú fyrirgefi oss góður Guð skuldir vorar.
Kærleikur til allra rnanna er frumskilyrði þess, að vér í
^unnleika njótum nálægðar Guðs á bænafundum vorum.
a þurfa og augu vor að horfa beint á Jesú, og engar
skýlur ganxallar venju rnega þar blinda oss. Alt á að vera
10