Prestafélagsritið - 01.01.1933, Page 194
Prestaféingsritm. Frá norræna biskupafundinum.
187
löggiltar eru í Norðiirlandakirkjunum á nálægum tíma. Var
málið reifað af biskupunum Rud frá Odense, Lunde frá Osló,
fíodhe frá Lundi, von Bondorff og þeim er þetta ritar. Iíom
öllum, er tölu'ðu, saman um, a'ð æskilegt væri að á gæti komist
nieira samræmi í helgisiðahaldi með Norðuriandakirkjunum
en nú ætli sér stað. — Eftir miðdegisverð þágu fundarmenn
heimboð Claes Aminoffs baróns og konu hans, á stórbýlinu
Kansas í Masku. Að aflokinni kaffidrykkju var fundur settur
bar á stórbýlinu og hafnar umræður um kirkjuréttarlega stöðu
biskupsembœttisins innan Norðurlandakirknanna. Töluðu þar
af hálfu Dana: Bruun-Rasmussen biskup í Árósum, Stören
öiskup í Niðarósi af hálfu Norðmanna, Gummerus af hálfu
f inna. Eftir kveldverð var umræðunum haldið áfram í fundar-
salnum í Nádendal og skýrði sá er þelta ritar þar frá afstöðu
*slenzku kirkjunnar til ríkisvaldsins og stofnun Kirkjuráðsins
fyrir hina íslenzku þjóðkirkju. — Deginum lauk með kveld-
hænagerð þar sem Fonnesbech-Wnlf frá Hróarskeldu talaði.
Laugardagsfundirnir hófust með morgunbænagerð, sem Old-
enburg biskup frá Álaborg flutti. Síðan flutti Erkki Kaila
öiskup í Viborg (á Finnlandi) erindi út af orðunum í Gal. 3,
28. Að því loknu hófust umræður um nánara samband með
hirkjum Norðurlanda og reifuðu það mál Bergquist biskup og
Widner. Var þar meðal annars rætt um „mannaskifti", þ. e.
nrn að prestar úr einu landinu tækju sér dvöl um lengri eða
skemri tima í nágrannalöndunum til eflingar gagnkvæmum
kynnum, og um að biskupar sendust á prentuðum opinberum
skýrslum, ritgjörðum og tímaritum varðandi andlegan hag
biskupsdæmanna.
Síðdegisfundurinn var helgaður minningn látinna embættis-
öræðra, þ. e. sem látist höfðu síðan er síðasti biskupafundur
Var haldinn. Töluðu þar eftirmenn hinna látnu biskupa í hlut-
aðeigandi embættum, og rann þar fyrstur á vaðið erkibiskup
i-idein með ágætri minningarræðu um Söderblom erkibiskup.
bessum degi lauk með sameiginlegri altarisgöngu i Klaustur-
kii'kjunni og flutti þar Danell biskup i Skörum skriftaræðu.
Sunnudaginn 28. ág. fluttu ýmsir af biskupunum árdegis-guðs-
bjónustur bæði í Ábo og i nágrenninu, en í heimakirkjunni
1 Nádendal prédikaði Lunde Oslóarbiskup. Nokkrir biskup-
anna, þar á meðal sá er þetta ritar, fóru í bíl 60 rasta leið
•'orður til Vemo, til þess að vera þar við algerlega finska sveit-
arguðsþjónustu, og sáu þeir sízl eftir að þeir fóru þá för — enda
bótt þeir skildu ekkert af þvi, sem þar var talað e'ða sungið —
ID’í að guðsþjónustan var með afbrigðum hátíðleg og fjöldi fólks