Eimreiðin - 01.01.1932, Blaðsíða 78
66
MÁ TRÚA TÖLUM?
EIMREIÐltf
Hvað er það, sem við greiðum fé fyrir árlega til útlanda
annað en þær vörur, sem verzlunarskýrslurnar sýna? Og hve
miklu nema þær upphæðir? Það er erfitt að segja slíkt með
nákvæmum tölum. En í áætlunum getur einnig verið leið'
beining. Ég ætla að reyna að gera slíka áætlun, þótt aðeins
geti verið um ófullkomna tilraun að ræða.
A. Fyrst ber að telja vexti og afborganir af erlendum lán~
um. Þessi lán eru: 1. Lán ríkissjóðs. 2. Lán bankanna. 3.
Lán bæjarfélaga, einstakra manna og stofnana.
1. I athugasemdum við fjárlagafrumvarp stjórnarinnar, sem
nú er lagt fyrir þingið, eru vextir af erlendum lánum ríkism5
taldir samtals ísl. kr. 1.190.877.07, en afborganir af erlendum
lánum ísl. kr. 523.828.37. Þetta verða samtals í vexti og af'
borganir h. u. b. 1.714.000 ísl. kr. Auk lána þeirra, sem taliu
eru í athugasemdum við fjárlögin eru lán, sem ríkissjóður tók
á árunum 1926 og 1927 til verðbréfakaupa, alls 4,5 miljónir
danskar krónur. í vexti og afborganir af þeim greiðast árleð3
h. u. b. 292.000 d. kr. eða h. u. b. 356.000 ísl. kr. Vextir
afborganir af erlendum lánum ríkissjóðs verða þannig árleS3
samtals h. u. b. 2.070.000 ísl. kr.0
2. Samkvæmt reikningum bankanna, Landsbankans og Ut'
vegsbankans, í lok ársins 1930, námu fastaskuldir þeirra er'
lendis samtals h. u. b. 12,8 miljónum króna. Afborganir °S
vextir af þeim munu varla nema minna en 1,25 millón
króna árlega. Hér við mun mega bæta láni Fiskiveiðasjóð5
íslands, sem Útvegsbankinn stjórnar, 1,5 miljón króna*
Auk þess mun vera nokkuð af veðdeildarbréfum Landsbank
ans og jarðræktarbréfum á erlendum höndum. Vexti af
slíkum bréfum og útdregin bréf verður væntanlega annað'
hvort að greiða í erlendum gjaldeyri eða breyta í erlendan
gjaldeyri.
Við þetta bætast lausaskuldir bankanna erlendis. Eru Þ3^
mjög mismunandi og breytilegar á ýmsum tímum árs og fra
ári til árs, stundum innieignir í bönkum erlendis. En hér mnn
1) Engar afborganir ber ennþá aö greiða af enska láninu 1930. Pe9ar
þær afborganir byrja, vex upphæðin falsvert.