Eimreiðin - 01.01.1932, Blaðsíða 80
68
MÁ TRÚA TÖLUM?
EIMREIÐIN
hverri ferð. Hvað hver eyðir í hverri ferð, er afar-misjafnt.
Sumir fara stuttar ferðir, með stuttri dvöl erlendis. Lifa sumir
sparlega og eyða litlu. Aðrir halda sig vel og eyða talsverðu-
Enn eru til þeir, sem eyða óhóflega miklu. Sama á við um
ferðalög, er menn dvelja erlendis um lengri tíma. — Þá er
námsfólk, sem dvelur mestan hluta ársins við nám í öðrum
löndum. Það þarf bústað og lífsviðurværi, kenslugjöld, til
bóka o. s. frv., sem alt greiðist af íslenzku fé í erlendum
gjaldeyri. — Þá dvelja ýmsir, embættismenn, starfsmenn og
einstakir menn, erlendis um lengri eða skemri tíma til þesS
að kynnast einhverjum nýjungum, sem þeir hugsa sér að not-
færa á einhvern hátt heima á íslandi. — Enn er það m)o3
algengt, að slíkt ferðafólk kaupi ýmislegt erlendis, fyrir sjálft
sig og aðra, svo sem ýmiskonar fatnað, skartgripi, búsáhöldi
húsmuni o. fl. Flest af vörum þessum tekur það með í far'
angri sínum og kemur það hvergi á verzlunarskýrslur. ""
Ennfremur ber að telja hér það, sem íslendingar eyða í ferða'
lög milli hafna á íslandi með erlendum skipum. Það gen8ur
í erlendan sjóð og þarf að greiða fyr eða síðar út úr landinu
með erlendum gjaldeyri.
M. a. með tilliti til þess, sem hér hefur verið nefnt (Þ°^
margt fleira mætti telja) hygg ég, að ekki sé of hátt áætlað.
að undir þessum lið eyðist erlendur gjaldeyrir, sem nemur
þrem miljónum íslenzkra króna.
D. Ýmsar greiðslur í erlendum gjaldeyri. Hér er átt V1
margvíslegar greiðslur, sem ekki falla undir neinn þeirfa
þriggja flokka (A, B og C), sem taldir eru hér að framan.
svo sem kostnaður við viðgerð skipa og endurnýjun áhal a
togara og annara skipa, nema skipa Eimskipafélagsins (s'a
um þau síðar), í erlendum höfnum; vistakaup slíkra skipa’
greiðslur fyrir smyglað áfengi og aðrar vörur, sem smyS13,
kann að vera frá útlöndum; kostnaður við dvöl íslendinS3 a
sjúkrahúsum og hælum erlendis og læknishjálp þar; meða
með fráskildum konum og börnum, sem íslendingar Srel
erlendis; ýmsar greiðslur ríkissjóðs erlendis, þ. á. m. til hon
ungs, utanríkismála o. s. frv., ennfremur margt annað.
gizka á, að þessar greiðslur samanlagðar nemi ekki minna
en einni miljón íslenzkra króna árlega.