Eimreiðin - 01.01.1932, Page 100
88
FRIÐFINNUR LEIKARI
eimreiðin
hann hefur sýnt í tugatali. Sem gamanleikari beitir Friðfinnur
aldrei fyrir sig skrípalátum, og honum er bæði um og ó, þeg-
ar leikurinn gerist úr góðu hófi tvíræður.
Mér virðist margt benda til þess, m. a. persónulegir eigin-
leikar og viðhorf til listarinnar, að það sé mikið frekar tilvilj-
unin en nokkuð annað, sem gert hefur, að Friðfinnur er nú
alveg einstakur gamanleikari. Hefði hann þegar á unga aldri
fengið að spreyta pig á merkilegum viðfangsefnum og notið
góðrar tilsagnar í leikskóla, þá er líklegt að hann hefði orðið
mikill skapgerðarleikari. Leikgáfa hans uppfyllir helztu skilyrðin
til skapgerðarleiks. Tilfinningin er djúp og viðkvæm, og skiln-
ingur og eftirtekt á hugarfari manna og daglegri breytni í góðu
lagi. Vitaskuld koma þessir eiginleikar einnig gamanleikaranum
að góðum notum, sérstaklega þegar hlutverkið er tvíþætt
eða gefur tilefni til að sýna mannlega bresti í ljósi rneðaumk-
unar og umburðarlyndis. Þar verður bilið milli harmleiksins
og gamanleiksins svo mjótt, að vart verður á milli ^greint, oS
leikur góðs gamanleikara ígildi skapgerðar-leiks. í leikritum
Moliére eru mörg slík hlutverk. Af þeim hefur Friðfinnur Ieikið
Argan í »ímyndunarveikinni*. Hann sýndi sársjúkan aumingja
sem fallið hefur í klærnar á ágjörnum læknum, og tærist upp
af ótal ímynduðum sjúkdómum. Þar sem honum tókst bezt
upp í samleiknum við aðra leikendur, var meðaumkunin jafn
ofarlega og hláturinn. Vert er að geta þess, að í seinna skiftið
er Friðfinnur lék Argan, núna í haust, var leikur hans allur
heilsteyptari en í fyrra skiftið (1922), enda var nú leikstjórnin
örugg og föst í höndum Haralds Björnssonar, en góð leik-
stjórn bætir leik jafnvel beztu leikara. Annað tvíþætt hlutverk,
sem Friðfinnur hefur raunar enn ekki leikið, er Jeppi á Fjalh
í samnefndum leik Holbergs. Líkt og Argan þjáist af ímynd-
uðum sjúkdómum, þjáist Jeppi af drykkfeldni, og verður sa8a
hans jafnhörmulega hlægileg og Argans. Það væri ánægju-
legt að sjá Friðfinn leika hlutverk ]eppa, og það er trú mín,
að þar myndi Friðfinnur ná hámarki listar sinnar, því JepP'
er norrænn maður, í ætt við Jón bónda og Freystein á Kot-
strönd, og lýsing hans því nær íslenzku eðli en franskt hugar-
far Argans. — En það þarf ekki til, Friðfinnur þarf ekki að
leika fleiri hlutverk þess vegna. Hann hefur þegar sýnt, að
hann er góður leikari, ekki aðeins einstakur gamanleikari,
heldur mikill Ieikari, sem þjóðin getur talið meðal beztu lista-
manna sinna.
Lárus Sigurbjörnssori.