Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1932, Síða 102

Eimreiðin - 01.01.1932, Síða 102
90 KREUTZER-SÓNATAN EIMREIÐIN fylgdi henni alt af með augunum, og ég þurfti ekki annað en að athuga hvernig hún bar sig til, þegar hún helti tei í bolla, hvernig hún dillaði fætinum, eða hvernig hún bar te- skeiðina upp að munninum og sötraði í sig teið, til þess að ilskan bálaði upp í mér, eins og hér væri um glæpsamlegt framferði að ræða. Ég veitti því þá ekki eftirtekt, að þessi reglubundnu hat- ursköst endurtókust með jöfnu bili þess, sem við vorum ást- fangin hvort í öðru, sem við svo kölluðum. Að loknu hverju slíku kærleikstímabili kom jafnaðarlega haturstímabil. Ef ástin milli okkar hafði verið óvenjulega heit, varð hatrið á eftir óvenjulega langvint, en styttra, ef ástin var með kaldara móti. Hvorugt okkar skildi þá, að bæði hatrið og þessi ást okkar var hvorttveggja ein og sama dýrslega hvötin, þó að hún lýsti sér á tvennan og ólíkan hátt. Það hefði verið óbærilegt fyrir okkur að lifa eins og við gerðum, ef við hefðum skilið okkur sjálf til fulls, en það gerðum við ekki. Þótt maður sé á villigötum, getur hann bjargað sér frá örvæntingu meðan hann blekkir sjálfan sig og sér ekki sína eigin villu. Hegninguna fær hann að vísu ekki umflúið, en hann getur dregið sjálfan sig á tálar. Þetta var einmitt það, sem við gerðum. Konan mín sökti sér niður í allskonar störf, til þess að gleyma. Hún vann að heimilis' störfum, sá um að íbúð okkar væri í lagi, hugsaði um klæðn- að sinn og snyrtingu, um það að klæða börnin, hirða þau og kenna þeim, — og ég sökti mér á sama hátt niður í em- bættisstörf mín, en stundaði þess á milli veiðar og spilamensku af kappi. Við vorum bæði störfum hlaðin, og fundum jafn- framt bæði, að því meira sem við höfðum að gera, þeim mun verri gátum við verið hvort í annars garð. »Þú mátt vera fýld fyrir mér«, hugsaði ég stundum, »en nú hefurðu verið með nöldur í alla nótt, og snemma í fyrramáliS á ég að mæta á fundi*. — »Þér ferst*, var hún þá vön að hugsa og jafnvel segja líka: »Ég og barnið höfum ekki sofnað dúr í alla nótt fyrir þér«. Allar þessar nýju kenningar um dáleiðslu, geðbilanir og móðursýki eru ekkert annað en bull og það meira að segja ómerkilegt og ósvífið bull. Charcot mundi auðvitað undir eins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.