Eimreiðin - 01.10.1936, Side 69
EIMREIÐIN
FRUMBÚSKAPUR OG FRAMLEIÐSLUVERÐ
413
hjálpað þeim til að lyfta því Grettistaki að verða fyrstir allra
landsmanna til að reisa hjá sér fjölda heimilisrafstöðva til
þess að fækka eitthvað þeim „þúsund ára gömlu“, t. d. losna
við hlóðaeldhúsið; koma upp hjá sér loftskeytastöð til þess
nð losna við eitthvað af hinni „gagnlegu einangrun" og kaupa
skip til að koma „afganginum“ á markaðinn.
Eg þj'kist nú hafa sýnt yður greinilega á hvaða villigötum
tér eruð, þegar þér dásamið þann margumtalaða frumbúskap,
Sem i þúsund ár hefur verið þjóðarböl vor Islendinga, sem
l'jóðin hefur ávalt þráð að vaxa frá; og að „skakka stefnan“,
sem þér kallið svo, er einmitt rétta stefnan. Stefnan að því,
sá hluti íslenzku þjóðarinnar, sem í sveitum býr, eigi kost
a að lifa samskonar menningarlífi eins og aðrir ibúar þessa
lands.
Eramleiðsluverðið:
Ég kem þá að öðru aðal-ágreiningsei'ni okkar, sein í raun
°g veru er aðalatriðið. En það er afstaða ríkisvaldsins gagn-
vart framleiðslunni. Ég segi að það sé aðalatriðið í þessari
úeilu okkar, þvi að í sannleika sagt finst mér tæplega hægt að
tala um það í alvöru að fara að reyna að gera bændur að alt
°ðruvísi mönnum en nokkur þeirra vill vera, láta þá fara að
Efa þvi lífi, sem þeir hata og fyrirlíta, og koma þeim í það
ástand, sem þeir hafa í 1000 ár þráð mest af öllu að losna til
fulls úr, svo að þeir gætu lifað samskonar lífi og aðrir siðaðir
uienn.
Hitt er aftur á móti merkilegt mál, hvaða afstöðu ríkis-
valdið á að taka gagnvart framleiðslu, sem lent hefur í þeim
ei’fiðleikum, sem nú þjá íslenzkan landbúnað.
Þeir erfiðleikar eru einkum þessir:
Nú um all-langt skeið hefur landbúnaðurinn yl'irleitt verið
Vekinn með tapi. Skuldir hafa safnast hjá flestum bændum,
kæði við verzlanir og lánsstofnanir, svo að mjög er farið að
kera á, að þeir geti ekki undir þeim risið. Unga fólkið leitar
1 stór-hópum burtu úr sveitunum, af því að það sér þar enga
afkornumöguleika, það leitar að sjávarsíðunni, gint af háu
Þrnakaupi, tíma úr árinu, en bætist svo í hóp atvinnuleysingj-
a|ina hinn tímann, af því að framleiðslan við sjóinn á líka