Eimreiðin - 01.07.1958, Blaðsíða 52
184
EIMREIÐIN
„Þar Reykjavíkur dómkirkja er nú komin undir þak og
mikið af liennar innanbyggingu verður klártgert í vetur, svo
það lítur til þess að hún verði embættisfær að hausti, hve
margar klukkur, hver orna- og instrumenta verða henni til-
færð frá Skálholti og upp á hvem hægastan og rninnst bekosti-
legan máta getur transportið skeð?“
Þremur dögum síðar, 11. nóvember 1791, svarar biskup
þessari fyrirspurn, telur upp ýmsa hluti og klykkir út með
eftirfarandi lýsingu á altarisbríkinni stóru, sem hann telur
hiklaust eiga að fara til Reykjavíkur dómkirkju:
„Það kostbarasta og prýðilegasta er þá eftir, sú stóra for-
gyllta brík af logagylltu bildhuggerarbeide, hvörs maki óvíða
mun finnast, en hana að flytja tvíla eg sé mögulegt, nema að
flytja hana á kviktrjám á ísum að Eyrarbakka og þaðan sjo-
veg til Reykjavíkur. Allur hinn skrúðinn er ekkert hjá henni,
enda er flutningurinn á hönum að mér sýnist ekkert hjá henn-
ar. Sýslumaðurinn í Árnessýsln væri sá líklegasti að for-
anstalta flutninginn."
En smíði dómkirkjunnar í Reykjavík gekk hægt, og ekki
bráðlá á um flutninginn, enda óx hann mönnum mjög í aug-
um. Bollalögðu höfðingjar um það í bréfum, hversu leysa
mætti þann vanda að koma bríkinni til Reykjavíkur. Hinn
25. janúar 1793 skrifar stiftamtmaður sýslumanninum í Át'
nessýslu, Steindóri Finnssyni í Oddgeirshólum, og leggur fyr'
ir hann að sjá um að koma bríkinni til Þorlákshafnar. Kveð-
ur hann svo í bréfinu, að þetta muni ekki hægt öðru vísi en
á ísum, en frá Þorlákshöfn megi svo sæta skipsferð um að
koma bríkinni til Reykjavíkur. Leggur stiftamtmaður ríkt ;l
við sýslumann að láta gera forsvaranlega kassa að bríkinnn
pakka hana vandlega niður og koma henni fyrir í þeim kong'
inum tilheyrandi pakk- eða fiskhúsloftum í Þorlákshöfn und-
ir forvaringu trúverðugs manns.
En seinagangurinn var mikill, og enn liðu nokkur ár, áðu*
en hafizt væri handa í málinu. En veturinn 1795—1796 hefn1
þótt sýnt, að nú yrði dómkirkjan í Reykjavík fullger innan
skamms. Lét þá Steindór sýslumaður taka ofan bríkina °8
flytja hana til Eyrarbakka, en ekki til Þorlákshafnar eins og
stiftamtmaður hafði lagt til, og skrifaði um leið Niels Lan1'