Eimreiðin - 01.07.1958, Blaðsíða 112
244
EIMREIÐIN
Á tveim tii þrem dögurn mætti fara þarna milli byggða.
Með tilliti til þess og vegna óskar unr að finna nýja leið fyrir
skemmtiferðafólk, stakk ég upp á því árið 1897 við Briem
amtmann á Akureyri, að varðaðir yrðu nauðsynlegustu stað-
ir, svo senr vöð yfir árnar. Sjálfur bauðst ég til að vísa á þessa
staði, þegar leið nrín Lá aftur yfir Kjöl árið 1898. Amtmað-
urinn tók þessu boði. Því var það, að þegar Klein málari og'
ég höfðum lokið rannsókn okkar á Vestur- og Norðurlandi.
komum við finrnr saman á tuttugu hestum og nreð tvö tjöld
að Gilhaga að kvöldi dags. 12. ágúst.“
☆
Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga var nýlega orðinn þrettán
ára þetta ágústkvöld 1898, þegar Daníel Brún reið í hlað í
Gilhaga, ásamt fylgdarliði sínu. Þótt Gilhagamenn væru van-
ir komu útlendinga, senr fóru suður Kjöl eða konru að sunn-
an, og innlendra ferðanranna sönru leiðar, þótti koma Dani-
els Brúns að Gilhaga minnisstæðari öðrunr gestakomunr.
Þegar Þorsteinn kom lreim með kvíærnar unr náttmálaleyt-
ið, eins og venjulega, jretta ágústkvöld, var búið að reisa tvo
tjöld á bæjarhólnum. Hann segir:
„Þetta var mér engin nýlunda. En aldrei þessu vairt voru
þeir faðir minn og afi sokknir niður í samræður við konru-
menn. Hópur manna stóð skammt frá tjöldununr og virtist
ræða eitthvert nrikið vandamál. Ég rak ærnar í kvíarnar og
fór síðan tafarlaust á vettvang til að svala forvitni minni unr
hvað nú væri á döfinni. Sá, sem fyrstur vakti athygli mína.
var Daníel Brún. Hann var mikill nraður vexti, bjartleitui
og fríður, og þá hafði ég engan mann séð eins feitan. Túlk-
urinn hét Böðvar Bjarnason. Hann var tæplega meðalmaðtu
vexti, en mjög fríður; hafði falleg augu og góðlegan svip-
Mér var sagt, að hann væri prestaskólakandídat, og jók það
mjög á virðingu mína fyrir manninum. Fylgdarmaður het
Magnús Vigfússon, gjörfulegur nraður, snar í hreyfingum °S
vel máli farinn. Hestasveinninn hét Ámundi, nriðaldra rrrað-
ur og virtist fremur hlédrægur.“
Daníel Brún segir m. a. eftirfarandi unr fylgdarsveina sxna.