Eimreiðin - 01.07.1958, Blaðsíða 82
214
EIMREIÐIN
Níu árum eftir útkomu skáldsögunnar The Great Gatsby,
kom skáldsagan Tender Is the Night. Það er saga hinna skraut-
legu rústa kreppuáranna. Fitzgerald lauk aldrei við síðasta
verk sitt, The Last Tycoon, en þótt hann hafi ekki lokið
því, er það samt meining manna, að enginn bandarískur höf-
undur hafi komizt nær sannleikanum um Hollywood en
Fitzgerald í þeirri bók.
Auk fyrrgreindra bóka skrifaði Fitzgerald fjölda smásagna,
nokkur leikrit og ennfremur bækurnar The Beautiful and
Damned, Tales of the Jazz Age og All the Sad Young Men,
svo eitthvað sé nefnt. Því miður hefur ekkert, eða þá mjög
óverulegt, komið út eftir þennan mæta höfund á íslenzku-
Eins og allir aðrir höfundar af hans gerð, hefur liann ýniis
sannindi að flytja, sem ná langt út fyrir þau mörk, sem hann
setur verkum sínum á yfirborðinu, og þess vegna alltaf tíma-
bært að lesa hann.
Saga sú, sem hér birtist, er alls ekki sérkennandi fyrir F-
Scott Fitzgerald. í henni fjallar hann um efni, sem er mjög
fjarstætt því, er einkum leitaði á hug hans; upphafningu og
niðurlag þess tíma, sem hann lifði. Samt sem áður sýnir sag-
an, hver töframaður frásagnarlistar Fritzgerald hefur verið,
þótt hann sé einn þeirra, sem ekki er léttur í flutningum
milli tungumála, og sagan hljóti að gjalda þess.