Eimreiðin - 01.07.1958, Blaðsíða 117
EIMREIÐIN
249
við. Þegar kom á Hveravelli, hittu þeir fyrir Englendinginn
Howell, sem var þar á ferð með tveimur löndum sínum.
(Hotvell drukknaði síðar í Héraðsvötnum). Á Hveravöllum
stóðu þeir við í tvær nætur. Unnu þeir Magnús Vigfússon og
Indriði að því að merkja leiðina yfir hraunið, en þegar því
var lokið, liéldu Gilhagamenn aftur norður Kjöl. Á leiðinni
suður höfðu þeir vörðumerkt árvöð til bráðabirgða, og skyldi
það gert betur sumarið eftir, þegar öl 1 leiðin yrði vörðuð.
Fór vörðulagning Kjalvegar fram samkvæmt fyrirmælum
Haníels Brúns, utan einu atriði var riftað. Litlisandur var
aldrei varðaður, en það var eini kafli leiðarinnar, þar sem
Daníel Brún merkti sjálfur vörðustæðin. Sjást þessi stein-
nierki velunnara Kjalvegar enn í dag, þegar riðið er um Litla-
sand.“ *
Þorsteinn Magnússon segir um starfið sumarið eftir:
„Um vorið kom Magnús Vigfússon að sunnan með fjóra
verkamenn, og hófu þeir starf við vörðuhleðsluna. Þeir byrj-
nðu neðst á Mælifellsdal og héldu síðan inn Haukagilsheiði.
í Bugum voru þeir komnir á hinn óumdeilanlega Kjalveg.
Vörðuhleðslumennirnir skiptu sér í tvo þriggja manna flokka.
I öðrum flokknum voru þrír Reykvíkingar, Guðni, Ágúst og
Höskuldur. Guðni var smiður og hlóð, en hinir báru grjót.
I hinum flokknum var Reykvíkingur að nafni Hannes. Hann
hlóð, enda talinn vanur því starfi. Grjót til hans báru þeir
Indriði og Einar Jóhannesson, vinnumaður í Gilhaga. Grjót-
*ð var borið á handbörum.
Þegar þeir voru komnir í Buga, riðu þeir eitt laugardags-
hvöld norður Litlasand ofan að írafelli og Gilhaga. Þeir voru
hátir og fjörugir, og varð Höskuldur mikið drukkinn. Hinir
urðu allir meira og minna kenndir. Á þeim árum voru bænd-
nr og vinnumenn viðbúnir að taka á móti góðum gestum,
þótt þeir gerðu ekki boð á undan sér. Allir virtust þeir vera
v<d að manni, Hannes þó kraftalegastur, en hægur, enda
Hztur og með bilaðan annan fótinn. Guðni virtist vera traust-
Ur nraður og ráðsettur. Ágúst var mjög viðfelldinn ungur mað-
Ur- Hann var bróðir Magnúsar Vigfússonar. Höskuldur var
kraftalegur og hrókur alls fagnaðar í þessum félagsskap.