Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Page 31

Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Page 31
SIGRÚN AÐALBJARN ARDÓTTIR, KRISTJANA BLÖNDAL sem nemendur hafa af eigin námsgetu, vegna vísbendinga um mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar af námsgetu fyrir námsárangur (sjá Burns 1982, Felker 1974). Listinn var lagður fyrir nemendur í hverjum bekk í einu (hópfyrirlögn). Kvíði: Kvíðakvarðinn er 40 atriði og eru börnin beðin um að meta kvíða sinn við mismunandi aðstæður. Dæmi um atriði eru eftirfarandi: Þegar ég er ekki heima er ég hrædd(ur) um að eitthvað geti komið fyrir heirna. Ég er hrædd(ur) við þrumur og eldingar. Ég held ég kvíði meira fyrir en aðrir krakkar. Ég hef aldrei orðið hrædd- ur við neinn. Börnin gátu valið á milli fjögurra svarkosta, þ.e. alveg rétt, næstum rétt, næstum rangt og alveg rangt. I úrvinnslu var kvarðanum snúið þannig að hærri skor táknaði minni kvíða. Kvarðinn var lagður fyrir börnin í tvígang með sjö mánaða millibili. Stöðuleiki kvarðans var r=0,77, p<0,0001 (N=96). Sjálfsmytid af námsgetu: Spurt var um námshæfni nemenda. Nemendur gátu valið á milli fjögurra kosta: Ég er ekki dugleg(ur) að læra. Ég er ekki alveg eins dugleg(ur) að læra og flestir aðrir. Ég er betri að læra en margir aðrir. Ég er mjög dugleg(ur) og með þeim betri. Hærri skor þýddi jákvæðara mat á eigin hæfni í námi. Sama spurning var lögð fyrir börnin sjö mánuðum síðar og var fylgni á milli þessara tveggja mælinga há eða r=0,87, p<0,0001 (N=48). Rökhæfni Myndrænt vitsmunapróf Ravens (1956) sem mælir rökhæfni (analogical reasoning) var lagt fyrir nemendur til að meta vitsmunahæfni þeirra. Kvarðinn er 60 atriði. Prófið var lagt fyrir einn bekk í einu. Námsárangur Til að kanna námsárangur var voreinkunnum nemenda frá skólaárinu áður safnað, þ.e. fjórum mánuðum áður en gagnasöfnun rannsóknarinnar fór fram. Stuðst var við einkunnir í bóklegum greinum, þ.e. móðurmáli, bókmenntum, lestri, stafsetn- ingu, stærðfræði, líffræði, landafræði og sögu, og meðaleinkunn þeirra reiknuð. Sama námsefni var notað í þessurn námsgreinum í skólunum fjórum og prófin voru í hefðbundnu formi. Þótt sömu atriðin hafi ekki verið lögð fyrir börnin á vorprófinu í skólunum fjórum má gera ráð fyrir að próf eins og í móðurmáli, stafsetningu og stærðfræði hafi verið með svipuðu sniði á milli skóla, þar sem hefð er komin á form þeirra. Mat kennara á árangri nemenda, jafnvel við 7 ára aldur, hefur einnig reynst hafa gott forspárgildi um námsárangur síðar á skólagöngunni (Edelstein o.fl. 1990) og því virðist gott að treysta mati kennara á námshæfni nemenda. Af þessum sök- um þótti ekki ástæða til að óttast kerfisbundinn mun á einkunnagjöf kennaranna fjögurra. Rétt er að benda á að þar sem einkunnir einnar stúlkunnar í úrtakinu voru ekki tiltækar eru mælingarnar 47 í stað 48 þegar skoðuð eru tengsl breytna við meðal- einkunn. 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.