Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Blaðsíða 68
H Æ TT i SKÓLA
að ganga út frá því að hlutverk hans sé að mennta fólk með margs konar hæfileika,
áhuga og getu sem sinna muni margbreytilegum störfum þegar fram líða stundir og
búsett er úti um allt land. Atvinnulíf iðnvæddra landa er nú að taka miklum breyt-
ingum og kröfur um hæfni verða áður en langt um líður allt aðrar en nú (sjá t.d.
Carnevale 1991 og Reich 1992). Til að sinna því hlutverki framhaldsskólans að búa
nemendur undir störf í atvinnulífinu þarf að taka mið af þessum breytingum. Nem-
endum sem nú hætta í framhaldsskóla virðist ekki henta sú bóknámsáhersla sem nú
er í íslenskum framhaldsskólum. Fjölbreyttara nám ásamt markvissri leiðsögn gæti
dregið úr því mikla brottfalli sem hér hefur verið til umfjöllunar.
Þegar liggja fyrir til umræðu mismunandi tillögur um breytingar á framhalds-
skólanum og skólar eru farnir að leggja drög að nýjum námstilboðum til viðbótar
við þau sem fyrir eru og eru sum þeirra tengd atvinnulífinu (Menntamálaráðu-
neytið 1989,1991,1993).
Líklega verður aldrei unnt að koma alveg í veg fyrir að nemendur hætti í fram-
haldsskóla áður en þeir eru brautskráðir formlega og óvíst hvort endilega eigi að
stefna að því marki. Nemendur verða að eiga þess kost að gera sínar tilraunir. En
aukin þekking á eðli og orsökum brottfalls úr skólum, gengi brautskráðra og brott-
fallsnemenda í atvinnulífinu og þeim breytingum sem þar eru að verða er grund-
völlur þess að yfirvöld menntamála og skólamenn geti skipulagt skólastarf með
markvissum hætti, nemendum og þjóðfélaginu öllu til hagsbóta. Þessi rannsóknar-
efni bíða frekari úrvinnslu.
Heimildir
Bickel, R. 1989. Opportunity and high school completion. The Urban Review
21,4:251-261.
Blakemore, A. E., og S. A. Low. 1984. The high-school dropout decision and its wage
consequences. Economics of Education Review 3,2:111-119.
Bloch, D. P. 1991. Missing measures of the who and why of school dropouts. Impli-
cations for policy and research. The Career Development Quarterly 40:36-47.
Carnevale, A. P. 1991. America and the New Economy. Washington DC, The American
Society for Training and Development; U.S. Department of Labor Employment
and Training Administration.
Félagsvísindastofnun Háskóla Islands. 1993. Þjóðmálakönnun. Spurningavagn í
febrúar 1993. [Óbirt gögn.]
Fine, M. 1986. Why urban adolescents drop into and out of public high school.
Teachers College Record 87,3:393-409.
Hahn, A. 1987. Reaching out in American's dropouts. What to do? Phi Delta Kappan
69:256-263.
Jón Torfi Jónasson. 1992. Vöxtur menntunar á íslandi og tengsl hennar við atvinnu-
líf. Menntun og atvinnulíf, bls. 54-83. Reykjavík, Félagsvísindastofnun HÍ fyrir
Sammennt.
66