Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Side 123

Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Side 123
LÁRA STEFÁNSDÓTTIR SIGURJÓN MÝRDAL FJARKENNSLA UM TÖLVUNET Upplýsingatækni hefur fleygt frarn undanfarin ár og gætir áhrifa hennar á sífellt fleiri sviðum mannlífsins. Einn þáttur þessarar þróunar felst í fjarskiptum með tölvum um net með tiltölulega litlum kostnaði. Tölvunetið spannar heim hlaðinn upplýsingum og ótrúlegum kostum. Nýjar víddir hafa þannig opnast til þekkingar- leitar og menntunar sem kennarar um allan heim geta nýtt nemendum og starfs- grein til framdráttar. Þessi fjarskipti hafa verið kölluð tölvusamskipti. Eins og oftast þegar ný tækni ryður sér til rúms er kannað hvernig laga megi nýjungarnar að gömlum háttum og reynslu. Þannig lá t.d. beint við að nýta tölvu- samskipti til að endurbæta hefðbundið bréfaskólastarf, þar sem samskipti kennara og nemenda (og nemenda innbyrðis) gátu orðið hraðari og skilvirkari um tölvunet en með venjulegum póst- eða símasamskiptum. í ljós hefur komið að samskipti með tölvupósti bæta ekki einungis samskiptamynstur bréfaskólans, heldur auka við ýmsum möguleikum til þekkingarleitar og upplýsingaöflunar, náms og kennslu. Hér má nefna umræðu sem þátttakendur geta tekið þátt í óháð því hvar þeir eru staddir og hvenær tími gefst. Þar má ræða námsefni, senda inn tilkynningar eða bara spjalla. Stjórna má hverjir hafa aðgang að umræðunni en hún getur verið milli tveggja einstaklinga eða fleiri. Einnig er hægt að setja upp umræðu sem er opin öllum á netinu. Aðgangur að gagnasöfnum um tölvunet breytir einnig möguleikum nemenda. Þeir geta flett upp í bókasöfnum og upplýsingabönkum um margvísleg efni bæði innanlands og erlendis. Einn spennandi kostur tölvusamskipta er fólginn í tækifær- um til að sniðganga hindranir fjarlægða og landamæra. Þannig getur t.a.m. íslensk- ur kennari átt samstarf við kanadískan starfsfélaga um skipulag námsefnis eða verkefna, eða íslenskur kennaranemi tekið þátt í evrópsku námskeiði, eða Islend- ingur sótt gögn í ástralskt bókasafn án mikillar fyrirhafnar. FJARSKÓLI KENNARAHÁSKÓLA ÍSLANDS Kennaraháskólinn hefur um árabil þreifað fyrir sér um fjarkennslu, aðallega í endurmenntun og framhaldsnámi kennara, en einnig í svokölluðu réttindanámi fyrir leiðbeinendur í grunnskólum. í upphafi árs 1993 hófst ný námsbraut til al- menns kennaraprófs viö KHÍ. Þar er beitt fjarkennsluháttum og reyndir kostir tölvusamskipta. Rætur þessa nýja náms í fjarskóla KHI liggja víða. Þyngst vegur hinn mikli skortur á starfsmenntuðum kennurum í grunnskólum, einkum í dreifbýli. Breyttar Uppcldi og mcnntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 2. árg. 1993 121
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.