Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Blaðsíða 133
RAGNHEIÐUR BENEDIKTSSON
A ALÞJOÐAVETTVANGI
í KENNSLUSTOFUNNI
Mér fannst sérstaklega dnægjulegt að jylgjast með hve dlit nemenda d vatni
breyttist á þessu tímabili. Vatn var íbyrjun svo sjdlfsagt og ekkcrt sérstakt við það
en ílokin var það orðið að dýrmætum fjársjóði sem við áttum öll og þurftum að gæta
vandlega. (Ur skýrslu kennara)
í kynnisför til Bandaríkjanna 1986 kynntist ég verkefni er nefnist Kids network og
þá var á byrjunarstigi. Ég hreifst af hugmyndinni um að nemendur fengju að vinna
saman milli landa að rannsóknum á umhverfi sínu. Þeim gæfist kostur á að stunda
mælingar þar sem niðurstöður væru ekki fyrirfram gefnar og væru auk þess for-
vitnilegar, ekki einvörðungu fyrir nemendur sjálfa heldur einnig okkur sem eldri
eru. Þetta hlaut að geta orðið óvenjulega örvandi námsreynsla.
Nokkrum árum síðar bárust mér á ný upplýsingar um verkefnið sem bjó þá yfir
fjölbreytilegum námsgögnum, m.a. þar til gerðum hugbúnaði. Ég kynnti hugmynd-
ina fyrir skólastjóra Melaskóla, Inga Kristinssyni. Ég taldi að þarna væri á ferðinni
námsefni sem gæti hentað hérlendis. Hann sýndi málinu mikinn áhuga.
Kids network er ætlað að efla kennslu raungreina á grunnskólastigi í Bandaríkj-
unum. Allt frá byrjun var ákveðið að verkefnið teygði sig til annarra landa. Þróun-
arstarfið var unnið í Technical Education Research Centers í Massachusetts en
styrktaraðilar eru National Science Foundation og Apple-fyrirtækið. Utgefandi er
National Geographic Society í Washington DC í Bandaríkjunum.
Verkefninu er skipt í námseiningar sem lúta að umhverfisþáttum. Námseining-
arnar fjalla um gæludýr, súrt regn, veður, vatn, sorp, mataræði og sólarorku.
Kennsla hverrar námseiningar spannar sex vikur og eru tímasetningar fastmótaðar.
Um er að ræða námsefni sem samþættir margar greinar, s.s. landafræði, eðlis- og
efnafræði, stærðfræði og líffræði. Kannanir og niðurstöður úr mælingum nemenda
eru órjúfanlegir þættir námsins og berast með tölvusamskiptum.
Kids network-námsefnið hefur verið notað á íslandi í urn þrjú ár. Hér verður
sagt frá því starfi en höfundur þessarar greinar hefur haft umsjón með verkefninu.
Áhersla verður lögð á að draga fram kosti og galla þess að nota verkefni á borð við
þetta hérlendis. Leitað var álits kennara og nemenda sem hafa tekið þátt í verkefn-
inu á ýmsum stigum þess.
RIÐIÐ Á VAÐIÐ
Það varð að ráði að ein bekkjardeild 12 ára nemenda Melaskóla tók þátt í námsein-
ingum um gæludýr og súrt regn á vorönn 1990. Næsta skólaár var námsefni úr Kids
Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla Islands 2. árg. 1993
131