Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 5

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 5
IÐUNN Dauðinn í mjólk. 291 mönnunum tilefni til að ihuga, hve hæglega þeim getur skjátl- ast, er lærðustu mönnum yfirsést svo hraparlega, og lærðu mönnunum sá lærdómur, sem þeim er, ef til vill, enn meiri þörf á að festa sér í minni, að komið getur fyrlr, að smæl- ingjunum sé opinberað það, sem vitringunum er hulið. 1. Alice Evans uppgötvaði, að Bangssýkillinn og Brucessýkillinn væru skilgetnir bræður. Og það afrek vann hún áður en hún fór að starfa að gerlaveið- unum í hinni rauðu tigulsteinsbyggingu á Fjallinu. Þegar hún gerði þessa merku uppgötvun, var hún ekki annað en starfsstúlka, sem fékst við smásjár- rannsóknir á landbúnaðarrannsóknarstofu — og upp- götvunin þötti raunar ekki merkilegri en það, að hinir lærðu höfðingjar meðal gerlaleitarmanna um viða veröld leyfðu sér að ypta öxlum yfir henni með meðaumkun og lítilsvirðingu — því að hvað var stúlkutetur, sem sat kengbogin yfir smásjá í landbún- aðarrannsóknarstofu Bandaríkjanna? Og því gat hæglega haldið áfram, að uppgötvun hennar væri talin næsta lítilfjörleg niðurstaða, sem aðeins hefði fræðilega þýðingu, ef McCoy hefði ekki verið svo hygginn að veita henni atvinnu í hinni Rauðu rannsóknarstofu sinni, þar sem menn iðka lifs- hættulegar rannsóknir, en njóta útsýnis yfir Potomac- ána, þegar upp er litið. Því að hér var það, að ung- frú Evans færði sönnur á, að Bangssýkillinn — hin lítilsvirta orsök burðarsóttarinnar í kúm — gæti vald- ið sjúkdómum í mönnum og jafnvel dauða, nákvæm- lega á sama hátt og bróðir hans, Brucessýkillinn. í rauðu tígulsteinsbyggingunni, þar sem staðreynd- irnar eru fyrir öllu, en afleiðingarnar teknar til athug- unar síðar, gafst Alice Evans hið ákjósanlegasta tæki- 19*

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.