Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 9

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 9
IÐUNN Dauðinn i mjóik. 295 ursýnishorn frá hinum tignustu kúm. Hér sat hún, af því að yfirboðarar hennar höfðu, án nokkurs sýnilegs tilefnis, lagt fyrir hana að gefa því gætur, hverskonar gerlar fyndust í mjólk úr kúm, sem voru alt of hágöf- ugar til þess að geta gefið frá sér gerla, er nokkur hætta stafaði af . . . Hún vann eins og vél og ýtti endalausum röðum af glerjurn með mjólkursýnishornum undir smásjána. Hún starði á hina takmarkalausu lest af allavega lit- uðum gerlasýnishornum, unz hana verkjaði í augun — og alt voru það gerlar, sem ekki voru nægilega skaðlegir til þess að geta haft nokkra þýðingu. Hún streittist við, gersamlega örvona, eins og allar ungar stúlkur, sem sitja yfir smásjá. Hún hafði einskis að bíða — og sízt frægðar eða frama. Hún gat ekki komist hærra en að verða eins og hvert annað verk- færi og þræll einhvers gerlaleitarmanns með karl- mannsheila og þar af leiðandi skilningi á að nota sér handavinnu hennar og þrældóm . , . og ef til vill gat hún öðlast þá auðmýktarinnar fullnægingu að sjá ritað: »Eftir N. N. og Alice C. Evans« undir fyrir- sögn einhverrar greinar meðal þeirra, ef til vill al- óþörfu, þúsunda vísindalegra ritgerða, sem vella út úr stjórnarprentsmiðjunni. Þannig taldi Alice Evans gerlana í mjólk hinna há- velbornu kúa. Það gat jafnvel ekki svifið fyrir í draum- um hins skarpasta læknisvisindamanns, að þetta starf hennar snerti á nokkurn hátt Maltasóttina, eða yfir- leitt nokkra sótt. Að visu hafði það komið fyrir árið 1905, að skipstjóri nokkur hélt skipi sínu, sem engin man nú lengur hvað hét, frá ströndum Miðjarðarhafs- ins. Skip þetta flutti geitur. Skipshöfnin gæddi sér á geitamjólkinni og sparaði ekki við sig mjólkurneyzl-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.