Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 26

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 26
312 Dauðinn í mjólk. IÐUNN dagslegustu aðstoðarstörf á gerlarannsóknarstofu, skyldi hefja það heróp, er vakti lækna manna og dýra til að leggja út í nýja stórorustu við sjúkdóm og dauöa. Og vissulega sá hún sjálf, hversu skoplegt þetta var — og hún hafði opin augun fyrir því, hve öll sagan frá upphafi til enda var neyðarlega hvers- dagsleg. »Það hefir ekki annað átt sér stað, en aö tveir bræður og tvíburar hafa verið ættleiddir, hvor af sinni fjölskyldu — lækni og dýralækni — og feng- ið þess vegna hvor sitt ættarnafn«, skrifaði ungfrú Evans. »í tuttugu ár kom enginn auga á ættarmótið með bræðrunum og af þeirri einföldu ástæðu, að enginn hafði séð »drengina« samtímis og á sama stað«. Annað var ekki um þetta að segja, og þessir tveir gerlar, sem — eins og hún orðaði það sjálf — sýndu henni sérstakan fjandskap, gáfu henni ekki mikinn viðnámsþrótt. Og var þetta ekki tekið að þróast í þá átt, að það færi nú að verða karlmannsverk? Nú gerast ný tíðindi. Það var ungur vísindamaður — hann var ekki læknir, en doktor í dýralæknisvís- indum, svo og í heimspeki — við Cornellháskólann í Ithaca. Hann hét Charles M. Carpenter. Hann leit út eins og ungur háskólakennari, og þó höfðu ekki dott- ið af honum gullhringarnir við að aka vagnhlassi af gulrófum til bæjarins. Hann var ágætur dýralæknir og bar manna bezt skyn á, hvílíkur voði Bangssýk- illinn var fyrir kálffullar kýr, en reglulega skilmerki- lega og óhrekjandi staðreynd þurfti þó til þess að vekja hann tíl fullnustu cg velta honum út af því spori, sem hann gekk eftir, er hann vann sín dag- legu skyldustörf. Það vildi svo til, að ungur maður

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.