Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 37

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 37
IÐUNN Dauðinn i mjólk. 323 að þá var tekið til að gerilsneyða alla mjólk, sem drukkin var í háskólanum. í rannsóknarstofu sinni, þar sem alt óð á súðum, bretti Francis upp ermunum og tók til óspiltra mál- anna við þenna mjólkursjúkdóm. Hann byrjaði á því að fást við geitasýkla í fullu fjöri, nýkomna úr mönnum, þá viö svínasýkla, einnig úr mönnum, og loks við Bangssýkla úr kúm. Honum var ljóst, að skuggasvein- arnir höfðu siður en svo gefist upp, þrátt fyrir atburð- ina í Ithaca, South Bend, Earlham — og alt annað. Hinirmikilfenglegustu ogfrægustu vísindamenn höfðu gerst talsmenn þess, að útrýma kálfsburðarsóttinni á þann hátt að bólusetja kýrnar með lifandi Bangs- sýklum — og þar að auki var við að etja Mjólkur- búasambandið, sem aðeins seldi nýmjólk úr kúm, er voru undir stöðugu dýralækniseftirliti. Það var með réttu upp með sér af berklaprófuðu mjaltafólki, sem sótthreinsaði á sér hendurnar, af kúnum með hvít- þvegin júgur, fjósum sínum með hverskonar nýtizku útbúnaði og þeirri hirðingu gripanna, að óþarfi var að hita mjólkina, heldur mátti selja hana kaldhreinsaða við hækkuðu verði. . . . Og það voru til skoplegir menn, sem trúðu því, að náttúrleg mjólk, eins og hún kæmi úr kýrspenanum, væri heilnæmari en mjólk sem hefði verið gerilsneydd, hversu lítið sem hún hefði verið hituð . . . Það var ógrynni af mjólk, sem var dreift út um gervalt landið af hinum grandvör- ustu mjólkurbúum, sem höfðu þá sannfæringu, að unt væri að komast af án gerilsneyðingar. Þau mundu öll hafa orðið mjög glöð, ef unt hefði verið að sanna, að Bangssýkill svínsins væri hættu- leg ófreskja, en Bangssýkiil kýrinnar sakleysið sjálft. Francis skrifaði: »Þegar öllu er á botninn hvolft, er

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.