Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 39

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 39
IÐUNN Dauðinn i mjólk. 325 sig af því. En ég held, að ástæðunnar sé að leita í forvitni þeirra, sem er svo mikil, að þeir gleyma sjálfum sér, og vinnuákafanum, þegar þeir eru að uppgötva nýja leyndardóma. Francis segir, að það sé argvítuglega óþægilegt að vinna með gúmhönskum. Francis átti bágt með að sætta sig við, að öldu- sóttina mátti skýra á svo margvíslegan hátt. Hann gat ekki umborið allar þessar rökræður um sjúkdóminn. Bæði áður en hann lagðist, meðan hann var veikur og eins fyrst á eftir, var hann undarlega leyndardóms- fullur og hélt sig aðallega inni á litlu, óhreinu rann- sóknarstofunni sinni, þar sem hann rak sig úr skugga um hvern ágallann á fætur öðrum á þeim rannsóknar- aðferðum, sem áttu að nægja til þess að greina í sundur Brucessýkilinn og bræður hans, Bangssýkilinn úr svínum og kúm. Loksins tókst honum að gera það að vissu, sem áður var að eins möguleiki. Bangssýkill sá, sem er — upphaflega — úr kúm, er mjög vandfæddur, þegar á að ala hann í gróðursúp- um, utan líkama dýranna. Þessir Bangssýklar úr kúm þarfnast kolsýru, ef þeir eiga að dafna. Aftur á móti er Bangssýkill sá, sem er — upphaflega — úr svín- um, fjarri þvi að vera vandfæddur og dafnar vel án kolsýru. Brucessýklarnir eru aldrei vandfæddir, hvort sem þeir eru komnir úr geitum, kúm eða mönnum. Þetta er munurinn, sem óhætt er að reiða sig á, þegar greina skal Brucessýkilinn frá Bangssýklinum. En Bangssýkill úr svíni getur borist i kýr og frá þeim aftur í mjólkinni . . . Og Francis hafði tekist að finna Bangssýkla, upp- haflega úr kú, í blóði veikra manna — gerla, sem

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.